Stimpingar fyrir framan búningsklefa ÍA 6. júlí 2007 02:15
Eins og fram kemur hér að neðan var mikill hiti eftir leik ÍA og Keflavíkur og ásakanir ganga á víxl milli félaganna. Strax eftir leik hljóp Bjarni Guðjónsson í átt til búningsherbergja að beiðni dómara leiksins. Guðmundur Steinarsson leiddi hóp Keflvíkinga sem hljóp sem fætur toguðu á eftir Bjarna. Að því er sjónarvottar tjáðu Fréttablaðinu var ástandið eldfimt á gangi vallarhússins og mátti litlu muna að upp úr syði enda voru nokkrar stimpingar á ganginum. Bjarni hljóp inn í vallarhúsið en Guðjón Kristjánsson, fyrrum framkvæmdastjóri ÍA, reyndi að aftra Keflvíkingum inngöngu. Hann hægði nógu lengi á þeim til að Bjarni kæmist inn í klefa. Í kjölfarið var skellt í lás og Guðjón tók sér stöðu fyrir framan hurðina og aftraði því að Keflvíkingar næðu að brjóta sér leið áfram að því er sjónarvottar segja. Voru mikil öskur og læti á ganginum og gríðarlegur hiti í mönnum. Keflvíkingar fóru að lokum inn í sinn búningsklefa og þeim líkaði það illa að Gísli Gíslason, formaður rekstrarráðs meistaraflokks ÍA, skyldi koma þar inn skömmu síðar. „Ég veit ekkert hvað hann var að álpast inn í klefann okkar. Hann var þess utan ölvaður og ég hef mörg vitni að því," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur. Gísli gagnrýndi Keflvíkinga harkalega í fjölmiðlum í gær og þá sérstaklega Bjarka Guðmundsson, varamarkvörð Keflavíkur. Bjarki er ósáttur við gagnrýni Gísla. „Hann á ekki að vera að ræða um mál sem hann getur ekki vitnað til um þar sem hann var í því ástandi að hann gat ekki keyrt ökutæki," sagði Bjarki. Gísli segir Keflvíkinga ekki fara með allan sannleikann. „Þetta er aðeins hálfur sannleikur. Ég fór inn í klefa til þeirra en ölvaður var ég ekki," sagði Gísli, en hvaða erindi átti hann inn í klefa Keflvíkinga í þessu eldfima andrúmslofti? „Ég var nú í því hlutverki að róa menn og reyna að bera klæði á vopnin. Ég ætlaði annars bara að þakka þeim fyrir leikinn og gera tilraun til þess að róa öldurnar en það féll í grýttan jarðveg. Þetta var nú ekki nema svona tíu sekúndna stopp í klefanum," sagði Gísli sem sagði við fótbolti.net í gær að Bjarki hefði lagt hendur á einn leikmann ÍA-liðsins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira