Um 30 sjúklingar í einangrun Karen Kjartansdóttir skrifar 11. janúar 2013 18:58
Um þrjátíu sjúklingar eru nú í einangrun á Landspítalanum vegna inflúensu og annarra smitsjúkdóma. Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild segir að aðstæður séu mjög erfiðar og á von á því að ástandið muni versna á næstu vikum. Inflúensufaraldur er í hröðum vexti, samkvæmt gögnum frá sóttvarnalækni, þessir faraldrar eru þó ekki umfangsmeiri en í venjulegu árferði enn sem komið er, en það sem þykir óvenjulegt er að þessir þrír faraldrar falla saman, og margfalda þess vegna álagið á starfsmenn Landspítalans. Í dag voru 32 sjúklingar í einangrun á spítalanum en einbýli skortir sárlega á spítalann. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir álagið aukast með hverju árinu vegna stækkandi sjúklingahóps eldra fólk. Þá geri það stöðuna enn erfiðari að nú bíði um 50 manns á spítalanum eftir plássi á hjúkrunarheimili og þar fyrir utan hafi plássum á spítalanum fækkað sökum mikils niðurskurðar frá hruni. Þá skortir einbýli á spítalann til að koma í veg fyrir að smit dreifist. Hlutdeild einbýla á spítalanum er nú aðeins um 15 prósent. „Við reynum að nýta þau úrræði sem við höfum, " segir Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdóma deild, en hann segir það erfiðast hvað margir smitast á skömmum tíma. Hann ítrekar að starfsfólk geri sitt besta í stöðunni og hafi glímt við erfiðari áskorun árið 2009 þegar svínaflensan geisaði. „Stundum hendir það að slappur einstaklingur á fjölbýli smitar áður en til réttar greiningar kemur," útskýrir Már um það hvernig margir geta smitast á skömmum tíma, en hann telur skort á einbýlum eina meginástæðu fyrir kröfu um nýjan spítala. Enda vandamálið alvarlegt, „Þetta geta verið erfið veikindi og jafnvel dregið til dauða," segir Már.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira