Jólahald í uppnámi vegna veðurs 25. desember 2004 00:01
Vonskuveður á Norður- og Austurlandi hefur sett jólahald í uppnám á mörgum heimilum. Fólk komst hvorki lönd né strönd, og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og í dag. Frá Svalbarðseyri, austur að Lóni eru allir vegir ófærir. Ófært er á Akureyri og þótt veður hafi skánað er mælt með því að bæjarbúar haldi sig heima við, nema brýna nauðsyn beri til. Lögregla og björgunarsveitarmenn á sérbúnum bílum aðstoðuðu starfsfólk sjúkrastofnana við að komast til vinnu í morgun og hafa þurft að draga þó nokkra fólksbíla úr sköflum í dag. Síðdegis var björgunarsveitin einnig beðin um að fara með viðgerðarmenn upp á Vaðlaheiði til að reyna að koma aftur á útsendingum ríkisútvarpsins, en útsendingar beggja rása ríkisútvarpsins lágu niðri á svæðinu eftir hádegi í dag. Fyrir norðan segja menn þó að einstaklega vel hafi gengið miðað við aðstæður. Enginn hefur slasast og ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið á eigum fólks. Á Húsavík er einnig allt ófært og þar voru lögreglumenn og björgunarsveitir að störfum í nótt og í dag við að koma fólki til síns heima. Elstu menn muna ekki eftir sambærilegum veðurham á jólum, en í bænum eru víða mannhæðarháir skaflar og dæmi eru um að fólk hafi þurft að moka sig í gegnum snjó til að komast út úr húsi. Undir morgun var veðrið þó einna verst á austanverðu landinu, en í vindhviðum fór vindhraðinn allt upp í þrjátíu metra á sekúndu. Á Vopnafirði var til að mynda ekkert skyggni og mjög þungfært. Aflýsa þurfti messum og hefur fólk að mestu haldið sig innan dyra, ólíkt þessum börnum á Egilsstöðum sem nýttu sér snjóinn til hins ítrasta.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira