Kerry og Edwards í stuði 29. október 2004 00:01
John Kerry og John Edwards virðast komnir í sóknarham nú á lokaspretti kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum og nota hvert tækifæri til að sverta orðspor keppinautanna. Týndir hlutir, hvort sem það eru sprengiefni í Írak eða atkvæði í Flórída, setja sitt mark á kosningabaráttuna í Bandaríkjunum þessa dagana. Nú hefur komið í ljós að þau tæplega fjögur hundruð tonn af sprengiefni sem saknað er úr vopnageymslum í Írak voru þar þegar bandarískir hermenn náðu Bagdad á sitt vald. Nýtt myndefni sem birt var í dag sannar það svo ekki verður um villst. Þetta þykir vatn á myllu Kerrys sem hefur notað þetta málefni til að hamra á því að Bush sé ekki starfinu vaxinn og hafi ekki verið efst í huga að koma í veg fyrir útbreiðslu hættulegra vopna með innrásinni í Írak. Á meðan beinir varaforsetaefni Kerrys, John Edward, spjótum sínum að varaforseta Bush, Dick Cheney. Bandaríska Alríkislögreglan kannar nú hvernig á því stendur að fyrirtækið Halliburton hefur ítrekað verið ívilnað með alls konar ríkissamningum, meðal annars hvað varðar uppbyggingu í Írak. Cheney, var sem kunnugt er, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og sat lengi í stjórn. Cheney segist ekkert hafa lengur með fyrirtækið að gera og talsmaður Halliburton segir að þessi rannsókn sé aðeins kosningaáróður.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira