Innlent

Svona var 51. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þríeykið Þórólfur, Víðir og Alma á leið inn á einn upplýsingafund á dögunum. Þórólfur er fjarri góðu gamni í dag og munu þau Alma og Víðir fjalla um stöðu mála.
Þríeykið Þórólfur, Víðir og Alma á leið inn á einn upplýsingafund á dögunum. Þórólfur er fjarri góðu gamni í dag og munu þau Alma og Víðir fjalla um stöðu mála. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í dag í Skógarhlíð 14.

Þar munu þau Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, og Alma D. Möller, landlæknir, fara yfir stöðu mála með tilliti til Covid-19-faraldursins hér á landi.

Sem fyrr verður fundurinn í beinni útsendingu hér á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í kerfum Vodafone og Símans.

Fylgjast má með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan og fyrir neðan spilarann má svo finna textalýsingu með því helsta sem fram fer á fundinum, sem er sá 51. í röðinni.

Uppfært: Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum í heild sinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×