Götulistaverk unnin út frá stærðfræðiformúlum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 19. júlí 2016 09:00 Hér sést Jóhanna í vinnugallanum við verkið en til stendur að það verði tilbúði næstkomandi fimmtudag. Vísir/Vilhelm
Þetta er ferðalag úr tvívídd í þrívídd. Ég byrja með þríhyrning, margfalda hann, sný honum við og bý til tening. Ég er svolítið að vinna með platónsku formin, þessi grunnform í þrívídd. Þetta er allt í námsefninu,“ útskýrir myndlistarkonan Jóhanna Ásgeirsdóttir þegar hún er beðin um að greina frá götulistaverki sem hún vinnur nú hörðum höndum við að leggja lokahönd á. Götulistaverkið er staðsett hjá Kópavogskóla og er hluti af verkefnum Jóhönnu í sumar hjá Skapandi sumarstörfum í Kópavogi þar sem hún hefur starfað í sumar undir listamannsnafninu Fruma. Á veturnar stundar hún svo nám í myndlist við New York University. Verkefnið vinnur hún í samstarfi við grunnskólann og er það unnið út frá stærðfræðifomúlum með það að markmiði að auka aðgengi barna að fræðigreininni. „Þetta er bæði götulistaverk sem skreytir skólalóðina og svo erum við líka að stefna að því að búa til námsefni í kringum þetta. Sem myndi þá taka á stærðfræði, rúmfræði og myndlist,“ segir Jóhanna en hugmyndin er sem sagt sú að börnin læri í gegnum listaverkið. „Svo verð ég líka með kynningu á æðri víddum á tungumáli sem hentar grunnskólabörnum. Það verður um fjórðu víddina og ofar, þetta verður teikning eða skema af fjórðuvíddar tening.“ Jóhanna segist hafa blandað stærðfræði, raunvísundum og myndlist töluvert saman í myndlistarnámi sínu en segir að það sé fyrst núna á eldri árum þegar skyldunámi í stærðfræði er lokið sem hún sé að átta sig á því hversu margar skemmtilegar hliðar eru á stærðfræðinni, því þó hún hafa alltaf haft gaman af henni þá hafi hún líka stundum átt erfitt með hana. „Það er búið að vera dálítið löng þróun hjá mér að vera að blanda saman stærðfræði og myndlist en það hefur alltaf verið tilhneiging hjá mér. Ég hef alltaf haft áhuga á raunvísindum, það er bara það sem kveikir í mér. Svo hef ég alltaf haft gaman af því að mála, teikna og hanna,“ segir hún og því liggur kannski beint við að blanda þessum stærstu hugðarefnum saman. „Ég heyri stundum myndlistarmenn segja að þeir hafi ofnæmi fyrir stærðfræði. Mér finnst það auðvitað skiljanlegt. Ég veit ekki af hverju þetta hentar mér svona vel. Ég hef svolítið greint það þannig að ég hef áhuga á heiminum og það er í raun það sem raunvísindi eru, að finnast allskonar fyrirbæri í náttúrunni og manngerðir hlutir áhugaverðir. Vilja taka þá í sundur, skilja þá, kryfja þá og vilja skrifa það niður á reglulegan hátt. Þetta er einhver óslokknandi þorsti fyrir vitneskju og mér finnst hann eiga vel saman við listræna ástríðu fyrir því að skapa,“ veltir Jóhanna fyrir sér. Til stendur að götulistaverk Jóhönnu verði tilbúið næstkomandi fimmtudag en þá fer fram lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Kópavogi. 27 listamenn sýna afrakstur sumarsins og fer dagskráin fram víðsvegar um Kópavogsbæ en hefst klukkan 18.00 í Molanum. Þeir sem eru forvitnir geta kynnt sér verkefnið betur á Instagram-síðu verkefnisins. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 19. júlí.
Menning Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Sjá meira