Viðskipti erlent

Flugfélög krefjast afnáms umhverfisskatta

Kjartan Kjartansson skrifar
Flugvélar lagðar við Zaventem-flugvöll í Brussel. Verulega hefur dregið úr flugumferð eftir að ríki komu á ferðatakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins.
Flugvélar lagðar við Zaventem-flugvöll í Brussel. Verulega hefur dregið úr flugumferð eftir að ríki komu á ferðatakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins. Vísir/EPA

Evrópsk flugfélög sem róa nú sum lífróður vegna kórónuveirufaraldursins krefjast þess að þau verði losuð undan því að greiða umhverfisskatta sem eiga að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi. Sum staðar eru þó kröfur uppi um að stjórnvöld setji samdrátt í losun sem skilyrði fyrir því að bjarga flugfélögum.

Aðgerðir til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í heiminum hafa haft gríðarleg áhrif á flugfélög. Þau hafa brugðist við með því að fella niður ferðir, segja upp þúsundum starfsmanna og leita á náðir stjórnvalda til að bjarga sér frá falli. Icelandair sagði meðal annars um 240 manns og lækkaði starfshlutfall annarra starsfmanna í gær.

Einn liður í þeirri viðleitni er krafa flugfélaganna um að ríki felli annað hvort niður eða fresti ýmsum umhverfissköttum og gjöldum.

„Eftir að neyðarástandinu lýkur vonum við að ríkisstjórnir geri sér grein fyrir hversu brothættur þessi iðnaður er vegna lítils svigrúms og hás fjármagnskostnaðar. Að það sé ekki endilega skynsamlegt efnahagslega og fjármálalega að hækka skatta á geira sem er kerfislega veikur og efnahagslega veikur,“ segir Alexandre de Juniac, formaður Alþjóðasambands flugfélaga (IATA).

Tækifæri til að draga úr losun?

Reuters-fréttastofan segir að ástandið nú vegna faraldursins hafi vakið upp spurningar um hvort að ríki heims eigi að forgangsraða björgun flugfélaga fram yfir loftslagsmarkmið sín eða notfæra sér það til þess að ná markmiðunum. Um 2,5% heildarlosunar manna er vegna flugsamgangna.

Sum staðar hafa umhverfisverndarsamtök lagt til að samdráttur í losun verðir settur sem skilyrði fyrir því að ríki bjargi flugfélögum.

„Flugfélög sem kalla eftir aðstoð almennings á erfiðum tímum ættu að fallast á að þau þurfi að greiða skatta þegar ástandið er gott,“ segir Andrew Murphy, frá samtökunum Samgöngum og umhverfi. Þau leggja til að flugfélög verði látin samþykkja að nota umhverfisvænna eldsneyti og greiða nýja skatta þiggi þau aðstoð skattborgara.

Eins og stendur áætla sérfræðingar að minnkandi umsvif vegna faraldursins leiði líklega til samdráttar í losun frá flugsamgöngum og öðrum iðnaði á ársgrundvelli. IATA telur að flugumferð gæti dregist saman um 16% á þessu ári. Losun gróðurhúsalofttegunda myndi þá dragast saman um hundrað milljón tonn koltvísýrings sem er þó aðeins dropi í hafi árlegrar heildarlosunar manna.


Tengdar fréttir

Stórlega dregið úr umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu

Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið hefur dregist saman um tæp sextíu prósent á síðustu tíu dögum. Mestu munar um mikinn samdrátt í alþjóðlegu flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna og til og frá Keflavíkurflugvelli.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×