Innlent

Fær ekki að hitta eiginkonu sína til sextíu ára

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Birgir Guðjónsson læknir
Birgir Guðjónsson læknir Sigurjón Ólason

„Enginn getur komið í staðinn fyrir ástvin“, segir maður sem hefur ekki fengið að hitta eiginkonu sína í nærri hálfan mánuð vegna heimsóknarbanns á hjúkrunarheimilum. Þau hjónin hafa verið saman í sextíu ár og segir hann aðskilnaðinn síðustu vikur hafa tekið verulega á. 

Eiginkona Birgis Guðjónssonar hefur síðustu misseri dvalið á hjúkrunarheimilinu Grund en hún er með alzheimer. „Ég er hjá henni alltaf eftirmiðdaginn og borða með henni um helgar. Þannig að ég hef séð hana hvern einasta dag síðan að hún lenti á stofnun sem eru næstum tvö ár núna,“ segir Birgir.

Hefur ekki hitt hana í tvær vikur 

Fyrir um hálfum mánuði var sett á heimsóknarbann á sjúkrastofnanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Það bann gildir meðal annars á hjúkrunarheimilinu Grund. Birgir hefur því ekki getað hitt eiginkonu sína síðan þá og hefur það reynst honum mjög erfitt.

Birgir segist skilja það að settar séu takmarkanir á heimsóknir ættingja af ótta við smit. „Ég hefði tekið þátt í að skipuleggja takmarkanir. Það er sjálfsagt að tryggja það að fólk sé sæmilega heilbrigt. Bæði hversu oft og svona má koma en að útiloka svona alveg það er brútalt,“ segir Birgir.

Hann segir ástand margra íbúa þannig að lausnir eins og snjalltæki nýtist lítið. Birgir er læknir að mennt og segir hann margt skjóta skökku við þegar kemur að banninu. Til að mynda fari fjöldi starsmanna inn og út af hjúkrunarheimilunum á meðan ættingjar fá ekki að koma inn.

„Læknisfræðilega stenst þetta ekki því að þetta er bundið við mjög afmarkaða hópa en það er fjöldi annarra sem mun þurfa að ganga um og koma utan að og þá er eins mikil smithætta hjá þeim,“ segir Birgir. 

Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundar.Vísir/Egill

Margir reiðir og sárir vegna bannsins

Heimsóknabannið hefur áhrif á fjölda fólks um allt land en yfir tvö þúsund manns dvelja á hjúkrunarheimilum á landinu öllu. Þetta fólk fær ekki að hitta ættingja sína núna.

„Flestir sýna þessu skilning. Margir eru reiðir, sárir, svekktir út í okkur og ég skil þær tilfinningar fullkomlega og hef samúð með þeim en á meðan að landlæknir og sóttvarnalæknir gefa út þessar leiðbeiningar um það að vera með heimsóknarbann þá hlýtum við því,“ segir Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundar heimilanna.

Gísli segir að aðeins séu gefnar undanþágurnar frá banninu þegar fólk er komið í lífslokameðferð. 

Birgir sér ekki fram á að hitta eiginkonu sína næstu vikurnar. Hann óttast að henni geti farið aftur þar sem hún fær ekki að hitta fjölskylduna svona lengi. Þegar hún hitti hann síðast þá mundi hún varla nöfn barnanna þeirra þriggja. 

„Það er mikið af góðu starfsfólki og það er vel séð um hvern einstakling en það getur enginn komið í staðinn fyrir ástvin,“ segir Birgir.


Tengdar fréttir

Landspítalinn lokaður fyrir gestum

Tekið hefur verið fyrir heimsóknir á Landspítalann til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Aðstoðarmaður forstjóra spítalans segir lokað verði fyrir heimsóknir á meðan neyðarstig almannavarna er í gildi, og jafnvel lengur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×