Veður

Stormur, stórhríð og hörkufrost í kortunum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fyrsta norðanáhlaup vetrarins er væntanlet með tilheyrandi ofankomu og kulda.
Fyrsta norðanáhlaup vetrarins er væntanlet með tilheyrandi ofankomu og kulda. Vísir/Vilhelm

Í dag, á morgun og fram á föstudag er útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins með stormi, stórhríð og ísköldu heimskautalofti sem herðir á frostinu.

Gular viðvaranir verða í gildi um nánast allt land og taka þær gildi á mismunandi tímum og standa mislengi. Sums staðar gætu vindhviður farið upp í allt að 40 til 45 metra á sekúndu, að því er fram kemur á viðvörunarvef Veðurstofu Íslands.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir vaxandi norðanátt, víða verði hvassviðri eða stormur eftir hádegi og jafnvel enn hvassara í kvöld í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls.

Þá er búist við snjókomu á norðurhelmingi landsins og sums staðar talsverðri ofankomu á Norðurlandi. Sunnan heiða verður lítil úrkoma en þó lítils háttar él sums staðar. Það mun kólna í veðri og frysta á landinu í dag.

„Á morgun er ekkert nema norðan stormur í kortunum og enn hvassara í vindstrengjum sunnan undir fjöllum og þá einkum á suðaustanverðu landinu. Það verður snjókoma eða él norðan- og austanlands. Áfram líkur á dálitlum éljum sunnantil á landinu. Það herðir á frostinu þegar ískalt heimskautaloft streymir yfir okkur úr norðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Í þessu norðanáhlaupi sem hefst í dag og stendur fram á föstudag verður vindstyrkur og snjókomumagn væntanlega nægilegt til að það megi tala um stórhríð, að minnsta kosta á einhverjum köflum um tíma.

„Ekki er gert ráð fyrir að vind lægi að gagni fyrr en síðdegis á föstudag, þá fyrst vestast á landinu. Þá styttir einnig upp fyrir norðan og austan.

Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norðanátt, þá hækkar frosttölur á hitamælum og horfur eru á hægum vindi um helgina með hörkufrosti,“ segir í hugleiðingunum.

Hér má lesa á vef Veðurstofunnar um þær viðvaranir sem hafa nú þegar tekið gildi vegna veðursins eða taka gildi síðar í dag.

Veðurhorfur á landinu:

Vaxandi norðanátt í dag, víða 15-23 m/s eftir hádegi og hvassara í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls undir kvöld. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi, en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.

Norðan 18-25 m/s á morgun, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Úrkomulaust að mestu sunnan heiða, en þó sums staðar lítilsháttar él á þeim slóðum. Frost 2 til 8 stig.

Á fimmtudag:

Norðan 18-25 m/s, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Sums staðar dálítil él sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig.

Á föstudag:

Norðan 13-20, en hvassara suðaustantil. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir upp seinnipartinn, fyrst vestast á landinu. Herðir á frosti.

Á laugardag og sunnudag:

Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Víða bjartviðri, en stöku él syðst á landinu og einnig á Vestfjörðum. Frost 5 til 18 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×