Belgar með sterkan sigur á Englendingum

Leikmenn Belgíu fagna marki í kvöld.
Leikmenn Belgíu fagna marki í kvöld. getty/Dursun Aydemir

Belgía vann England 2-0 á heimavelli í riðli Íslendinga í Þjóðadeildinni.

Youri Tielemans skoraði fyrsta mark Belga á 10. mínútu eftir stoðsendingu frá Romelu Lukaku og Dries Mertens bætti við öðru markinu á 24. mínútu. Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik en Englendingar voru meira með boltann og sköpuðu sér mun fleiri færi.

Sigur Belgíu þýðir að England á ekki möguleika á fyrsta sætinu í riðlinum en Belgía og Danmörk mætast í úrslitaleik um toppsætið næsta miðvikudag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira