Stúdentar við HÍ æfir vegna fyrirkomulags lokaprófa Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. nóvember 2020 18:33 Háskóli íslands. Vísir/Vilhelm
Fjöldi lokaprófa við Háskóla Íslands, einkum á heilbrigðisvísindasviði, mun fara fram í formi staðprófs, sem krefst þess að nemendur mæti í persónu og sitji próf í kennslustofu, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingu rektors um að lokapróf á þessari önn muni fara fram á netinu sem fjarpróf, nema í undantekningartilfellum. Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir verulegum vonbrigðum með þetta fyrirkomulag og krefst þess að skólinn bregðist við með sanngjarnari hætti. Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, sendi nemendum póst þann 2. nóvember þar sem segir að próf muni fara fram á netinu nema í undantekningatilvikum, svo sem svokölluð samkeppnispróf og „tiltekin próf þar sem gæði námsmats og jafnræði nemenda verða ekki tryggð á netinu,“ líkt og það er orðað í bréfi rektors. Heimilt sé að halda „samkeppnispróf, þýðingarmikil lokapróf og staðbundnar námslotur fyrir allt að 30 manns í vel loftræstum rýmum,“ en það verði undir hverju fræðasviði og deildum komið að ákveða í samráði við kennslusvið hvaða próf falla undir undanþáguákvæðið. Meirihluti prófa á heilbrigðisvísindasviði í persónu Í dag voru birtir listar yfir fyrirkomulag lokaprófa eftir deildum þar sem í ljós kemur að undanþáguákvæðið hafi verið nýtt í miklum mæli í sumum deildum skólans, einkum á heilbrigðisvísindasviði. „Ef við skoðum tölfræðina í þessu eru niðurstöðurnar sláandi. Heilbrigðisvísindasvið er með lang flest skrifleg próf eða 64%. Til samanburðar má nefna að Hugvísindasvið er með 1% skrifleg lokapróf og Félagsvísindasvið 5%,“ segir í yfirlýsingu frá hópi nemenda í lífeindafræði við HÍ sem send var meðal annars á rektor, menntamálaráðherra og fjölmiðla í dag. „Þessar niðurstöður geta ekki talist boðlegar. Okkur þykir það afskaplega furðulegt að önnur svið innan Háskólans geti brugðist við breyttum aðstæðum og fundið nýjar lausnir til að þreyta lokapróf heima en okkar svið, Heilbrigðisvísindasvið sjái sér ekki fært að koma til móts við aðstæður samfélagsins,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni. „Við höfum ekki mátt mæta í skólann í vetur og því þykir okkur óábyrgt og algjörlega úr takti að eiga svo að mæta í hópum til að þreyta lokaprófin. Einnig má nefna að aðstæður nemenda eru misjafnar og taka þarf tillit til þess að margir eru með undirliggjandi sjúkdóma, andlega og líkamlega, mismunandi fjölskylduaðstæður og annað slíkt sem stangast alfarið á við þetta að eiga að mæta inn í stærri hópa en tilmæli sóttvarnarteymisins kveða á um, og það rétt fyrir jól.“ Auk yfirlýsingarinnar frá nemendum í lífeindafræði hefur fréttastofu í dag borist fjölmargar ábendingar frá áhyggjufullum námsmönnum við HÍ sem eru óánægðir með fyrirkomulagið. Þess má geta að í fyrstu bylgju faraldursins í vor var ekki gert ráð fyrir að próf færu fram í húsakynnum háskólans. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur jafnframt sent frá sér yfirlýsingu. „Það er ljóst á niðurstöðum könnunar Stúdentaráðs, á líðan og stöðu nemenda í námi, að aðstæður sökum COVID-19 séu að leggjast þungt á stúdenta og er mikill meirihluti þeirra að upplifa álag sem þau telja að hafi áhrif á námsframvindu sína,“ segir í yfirlýsingu SHÍ. Ráðið hafi farið fram á að námsmatið verði endurskoðað og gagnrýnt reglugerð ráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða. Reglugerðin hafi að mati Stúdentaráðs tekið lítið sem ekkert tillit til stúdenta. „Stúdentaráð hefur krafist þess að Háskóli Íslands bregðist við með sanngjörum hætti og telur viðbrögð þessi ekki fullnægjandi. Þrátt fyrir að faraldurinn komi í bylgjum er ekki boðlegt að neyða nemendur til að taka staðpróf og bjóða ekki upp á aðrar lausnir, einna helst þegar flest allt nám hefur verið rafrænt á misserinu,“ segir í yfirlýsingu Stúdentaráðs. Erlendir nemar vilji komast heim Þá er hafin undirskriftasöfnun þar sem erlendir námsmenn við Háskóla Íslands krefjast þess að boðið verði upp á að taka prófin rafrænt. „Margir erlendir nemendur vilja fara til heimalanda sinna en eru fastir á Íslandi þar sem ekki hefur verið ákveðið hvort lokaprófin verði á netinu. Kostnaður vegna uppihalds á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum og eiga margir námsmenn erfitt með að hafa efni á því. Við biðjum Háskóla Íslands um að hafa öll prófin á netinu svo við getum yfirgefið landið og farið heim til fjölskyldna okkar og ástvina,“ segir í lýsingu með undirskriftasöfnuninni sem gerð er í nafni John B.
Skóla - og menntamál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sjá meira