Fótbolti

Jón Dagur reyndist hetja AGF

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson.
Jón Dagur Þorsteinsson. VÍSIR/GETTY

Íslenski knattspyrnumaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson hóf leik á varamannabekknum þegar lið hans, AGF, heimsótti Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Lyngby komst yfir snemma leiks en Kevin Diks jafnaði fyrir AGF í upphafi síðari hálfleiks.

Staðan var 1-1 þegar Jóni var skipt inná á 75.mínútu og reyndist Jón Dagur hetja gestanna því hann skoraði það sem reyndist sigurmarkið á 89.mínútu. 

Lokatölur 1-2 fyrir AGF sem er í 5.sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×