Lífið

Þriggja milljarða hús Jeffrey Epstein verður jafnað við jörðu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jeffrey Epstein lést á síðasta ári.
Jeffrey Epstein lést á síðasta ári.

Hús Jeffrey Epstein í Palm Beach í Bandaríkjunum verður rifið niður og verður í kjölfarið reist enn stærra hús þar í staðinn. CNN greinir frá og þar kemur fram að kaupandinn hafi nú þegar ákveðið að rífa húsið en ásett verð fyrir eignina var 22 milljónir dollarar eða því sem samsvarar rúmlega þrír milljarða íslenskra króna.

Epstein lést í fangelsi í New York þann 10. ágúst síðastliðinn á meðan hann beið þess að koma fyrir dóm vegna ákæranna um kynferðisbrot og mansal. Hann var handtekinn í fyrra í New York sakaður um að hafa staðið á bak við mansalshring. Sumar þeirra sem sakað hafa Epstein um mansal og kynlífsþrælkun voru unglingar þegar brotin áttu sér stað og þær yngstu aðeins 14 ára gamlar. Dauði Epstein var úrskurðaður sjálfsvíg.

Húsið fór á sölu í júlí og seldist það á stuttum tíma. Eignin er núna 1300 fermetrar að stærð og glæsilega villa við ströndina.

Kaupandinn er fjárfestirinn Todd Michael Glaser sem stundar það að kaupa hús, rífa þau niður og láta reisa enn stærri og fallegri hús í kjölfarið. Hann segir að gjörðir Epsteins sé ekki eina ástæðan fyrir því að hann ætli sér að jafna húsið við jörðu.

„Við hefðum alltaf ákveðið að fara í þessar aðgerðir,“ segir Glaser í samtali við CNN en hann ætlar sér að reisa hús á sömu lóð og verður það tilbúið vorið 2022. Hann ætlar sér í kjölfarið að selja það á 40 milljónir dollara en ekki liggur fyrir hvað Glaser greiddi í raun fyrir hús Epsteins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×