Í þriggja leikja bann fyrir að grípa um kynfæri leikmanns KR Anton Ingi Leifsson skrifar 7. október 2020 19:44 Zvonko Buljan er leikmaður Njarðvíkur. BCM U Pitești
Zvonko Buljan, leikmaður Njarðvíkur í Domino’s deild karla, er á leiðinni í þriggja leikja bann eftir atvik sem átti sér stað í leik KR og Njarðvíkur í 1. umferð deildarinnar. Zvonko sem var að leika sinn fyrsta alvöru leik fyrir Suðurnesjaliðið greip um kynfæri Roberts Stumbris, leikmanns KR. Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en það sást bersýnilega á myndbandsupptökum sem dæmt var eftir. „Á myndbandsupptökunni sem nefndinni barst má sjá að hinn kærði grípur í kynfæri leikmanns KR og telur nefndin að myndbandið sýni með óyggjandi hætti að brot hafi verið framið sem hefði leitt til brottvísunar hefði dómari séð það,“ sagði í dómnum. „Að mati nefndarinnar er ljóst að ásetningur stóð til þess af hendi kærða að grípa í kynfæri leikmanns KR. Telur nefndin að slík háttsemi falli undir verknaðarlýsingu d. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar en þar segir m.a. að hafi einstaklingi verið vísað af velli vegna viljandi líkamsmeiðingar eða tilraunar til slíks skuli aga- og úrskurðarnefnd úrskurða viðkomandi í að minnsta kosti þriggja leikja bann.“ Ekki bárust athugasemdir frá Zvonko eða Njarðvík varðandi dóminn en Zvonko skoraði 25 stig í leiknum og tók ellefu fráköst. Hann mun nú missa af þremur leikjum Njarðvíkur. Þeir verða þó ekki á næstunni þar sem körfuboltinn er kominn á ís næstu tvær vikurnar.
Dominos-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira