Umfjöllun: ÍBV - Valur 23-22 | ÍBV skellti Val

Einar Kárason skrifar
HK - Íbv olís deild kvenna í handbolta vetur 2020 -2021 Hsí
HK - Íbv olís deild kvenna í handbolta vetur 2020 -2021 Hsí Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann eins marks sigur, 23-22, á Val í þriðju umferð Olís-deildar kvenna í dag. Mikil dramatík var undir lok leiksins enda spennan ansi mikil.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en ansi lítið var skorað. Einungis fimm mörk litu dagsins ljós fyrstu tíu mínúturnar og var sóknarleikurinn hjá báðum liðum nokkuð bagalegur.

Sóknarleikurinn fór þó aðeins að hrökkva í gang er líða fór á leikinn en jafnræðið var áfram mikið. Flautumark Ásdísar Þóru Ágústsdóttur gerði það að verkum að Valur var einu marki yfir í hálfleik, 10-11.

Áfram hélt spennan í Vestmannaeyjum en þegar stundarfjórðungur var eftir stigu Eyjastúlkur aðeins á bensíngjöfina. Þær náðu 3-1 kafla og náðu þannig að byggja upp fjögurra marka forskot, 22-18.

Það bil náðu síðustu Íslandsmeistarar sem voru krýndir, Valsstúlkur, ekki að brúa og Eyjastúlkur unnu að endingu 23-22. Stór sigur fyrir Eyjastúlkur upp á framhaldið að gera sem eru á toppnum með fimm stig.

Sunna Jónsdóttir var mögnuð í liði ÍBV. Hún skoraði tíu mörk og Birna Berg Haraldsdóttir bætti við sex. Í liði Vals voru þær Mariam Eradze og Þórey Anna Ásgeirsdóttir markahæstar með fjögur mörk.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira