Lífið

Steindi bókaði fimm töfra­menn í þrí­tugs­af­mæli Bents sem er ekki hrifinn af töfra­mönnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gömul og góð mynda af þeim félögunum saman. 
Gömul og góð mynda af þeim félögunum saman. 

Rappararnir Emmsjé Gauti og Arnar Freyr úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur byrjuðu nýlega með hlaðvarpið Podkastalinn. Nafnið vísar í síðdegisútvarpsþáttinn Kastalann sem strákarnir stýrðu fyrir 6 árum á KissFM. Í þættinum fara þeir um víðan völl, segja sögur af sjálfum sér og ræða það sem þeir kalla litlu málin.

Í nýjasta þættinum, þeim fjórða í seríunni rýna vinirnir í tilvist töframanna og annarra sambærilegra starfsstétta. Einhverra hluta vegna njóta töframenn takmarkaðrar virðingar og eru oft skotspónn gríns, samanber persónu Will Arnett í sjónvarpsþáttunum Arrested Development sem margir þekkja ágætlega.

„Trúðar eru teknir meira alvarlega en töframenn og ég sver það,“ segir Arnar. Sumir hafa líka óbeit á töframönnum eins og kemur í ljós þegar Gauti spilar upptöku af sögu sem Steindi segir honum af þrítugsafmæli rapparans Bents. Þessa sögu má heyra í klippunni hér fyrir neðan. 

Töframenn eru ekki þeir einu sem fá á baukinn í þættinum því þegar umræðan berst að miðlum þá ætlar allt um koll að keyra. Arnar ber augljóslega ekki hlýhug til miðla, þykir það kvikindislegt brask og segir:

„Miðlar eru verri en töframenn. Töframenn eru náttúrulega bara skemmtikraftar. Það vita allir að þeir eru ekki að gera alvöru töfra en miðlar reyna að halda því fram að það sem þeir gera sé satt.“ Þessu er Gauti sammála og til að undirstrika mál sitt um að hver sem er geti í raun verið miðill ákveður hann að setja sig í það hlutverk og rýna í líf Arnars. Þessa brellu má sjá í klippunni hér fyrir neðan. 

Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×