Lífið

Skaut saklausa konu í hálsinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Podkastalinn hófst í síðustu viku.
Podkastalinn hófst í síðustu viku.

Rappararnir Emmsjé Gauti og Arnar Freyr úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur byrjuðu í síðustu viku með hlaðvarpið Podkastalinn. 

Nafnið vísar í síðdegisútvarpsþáttinn Kastalann sem strákarnir stýrðu fyrir sex árum á KissFM. Í þættinum fara þeir um víðan völl, segja sögur af sjálfum sér og ræða það sem þeir kalla litlu málin.

Í nýjasta þættinum, þeim þriðja í seríunni ræða strákarnir meðal annars þær ótal óskrifuðu reglur sem gilda inni á baðherbergjum. Má til dæmis vaða beint til verks á almenningssalerni ef verið er að þrífa rýmið þegar maður gengur inn?

Hvernig á klósettrúllan að snúa og af hverju er það alþjóðlegt hitamál? Gauti segir sögu af því þegar hann sem ungur drengur skaut saklausa nágrannakonu sína með loftbyssu, en það var ekki fyrr en hann hitti fórnarlamb sitt nýlega sem atburðarrásin rifjaðist upp fyrir honum. Frásögn Gauta má heyra í klippunni hér fyrir neðan.

Vopnaburður Gauta er ekki eina sagan í þættinum sem fjallar um bernskubrek því vinirnir fara á flug þegar kemur að leynistöðum og erótík í „gamla daga“, sem þeir vilja meina að sé töluvert sakleysislegri en það sem gengur á gerist á internetinu í dag.

„Ég er þakklátur fyrir að hafa verið á einhverjum leynistöðum að finna rennblaut, ógeðsleg blöð þar sem það voru brjóst frekar en að vera unglingur í dag á internetinu að uppgötva kynlíf í gegnum klámið sem er aðgengilegt þar,“ segir Arnar. 

Podkastalinn kemur út á Spotify og YouTube alla fimmtudaga en hér fyrir neðan er hægt að hlusta á þátt númer þrjú í heild sinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×