Erlent

Stillir ekki til friðar heldur hellir olíu á eldinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Alex Brandon

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarna daga. Í stað þess að reyna að stilla til friðar eða miðla milli deilandi fylkinga, hefur forsetinn deilt samsæriskenningum um valdarán gegn honum, samsæriskenningum um að verið sé að ýkja fjölda látinna vegna Covid-19 og að mótmæli gegn ofbeldi lögreglu í garð blökkumanna í Bandaríkjunum sé dulbúin valdaránstilraun gegn forsetanum.

Hann deildi einnig ákalli um að Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, yrði handtekinn, hótaði að senda öryggissveitir gegn mótmælendum fyrir utan hvíta húsið, lýsti yfir stuðningi við stuðningsmann sem sakaður er um morð og ýmislegt annað.

Að morgni sunnudagsins, frá 5:49 til 8:04 um morguninn, að staðartíma, tísti Trump eða endurstísti alls 89 sinnum, áður en hann fór í golf í einkaklúbbi sínum í Virginíu. Bróðurpartur þessa tísta sneru að Portland, þar sem maður var skotinn til bana á laugardaginn.

New York Times segir eitt umdeildasta endurtíst Trump hafa snúið að miðlinum One America News Network, sem dreifir reglulega samsæriskenningum og umdeildu efni til stuðnings forsetans.

Þá endurtísti hann tísti OAN þar sem því er haldið fram að mótmælin séu vel skipulögð og fjármögnuð af leynilegum hópi anarkista, Markmiðið sé að velta Trump úr sessi.

Trump deildi einnig tístum um umfjöllun hins hægri sinnaða miðils Gatewaypundit. Þar er því haldið fram að einungis níu þúsund manns hafi dáið í Bandaríkjunum vegna Covid-19. ekki rúmlega 183 þúsund manns, eins og opinberar tölur segja til um.

Í greininni eru forsvarsmenn sóttvarna í Bandaríkjunum, Anthony Fauci og Deborah L. Birx, gagnrýnd fyrir að vilja slökkva á efnahagi Bandaríkjanna vegna einungis níu þúsund dauðsfalla.

Minnst einu þessara tísta hefur verið eytt af Twitter.

Trump hélt því sömuleiðis fram á Twitter um helgina að hann væri í rauninni að koma betur út úr skoðanakönnunum en Joe Biden, mótframbjóðandi hans. Það er ekki rétt.

Sömuleiðis hélt hann áfram að kalla eftir því að öryggissveitir yrðu sendar gegn mótmælendum, sem hann hefur ítrekað kallað anarkista og jafnvel hryðjuverkamenn.

Nú í nótt kallaði hann mótmælendur, og sérstaklega þá sem tilheyra ANTIFA-hreyfingunni, anarkista, þrjóta og æsingamenn.

Þá hrósaði hann stuðningsmönnum sínum, sem mynduðu bílalest og keyrðu í gegnum miðborg Portland um helgina, þar sem mótmæli gegn lögregluofbeldi fóru fram.

Stuðningsmennirnir skutu á mótmælendur úr loft- og málningarbyssum. Þessum stuðningsmönnum lýsti Trump sem „MIKLUM FÖÐURLANDSVINUM“.

Einn yfirlýstur stuðningsmaður öfgahægrisamtakanna Patriot Prayer, var svo skotinn til bana.

Sá hét Aaron Danielsson er leitar lögreglan að Michael Forest Reinoehl, 48 ára gömlum manni sem áður hefur verið sakaður um að vera með hlaðna byssu á mótmælum í Portland, samkvæmt frétt Oregonian.

Reinoehl kallar sig and-fasista og hefur verið viðloðinn mótmæli í Portland frá því í júní. Fjölskyldumeðlimir hans hafa borið kennsl á hann úr myndböndum af skotárásinni og hafa sömuleiðis lýst honum sem óskynsömum fíkli sem sé verulega skuldsettur. Hann er ekki búinn að vera í samskiptum við fjölskyldu sína í þrjú ár.

Þann 5. júlí var hann ákærður fyrir að vera með hlaðna byssu á almannafæri, að hlýða ekki skipunum lögreglu og að hindra störf lögreglu. Ákærurnar voru þó felldar niður en samkvæmt Oregonian liggur ekki fyrir af hverju.

Ekkert tjáð sig um mótmæli í Washington DC

Trump hefur ekkert sagt um mjög fjölmenn og friðsöm mótmæli sem fóru fram í Washington DC um helgina. Þar komu tugir þúsunda saman til að mótmæla kerfisbundnum rasisma í Bandaríkjunum og kalla eftir umbótum.

Þar hvöttu ræðumenn fólk til að kjósa. Framtíð barna þeirra væri í húfi og jafnvel líf þeirra.

Óreiða og stjórnleysi hjálpi Trump

AP fréttaveitan segir ráðgjafa Trump sannfærða um að hörð afstaða hans „með lögum og reglu“ muni hjálpa honum og þá sérstaklega að ná til háskólamenntaðra kvenna, sem hafa snúist gegn forsetanum í skoðanakönnunum.

Kellyanne Conway, einn helsti ráðgjafi Trump, sagði nýverið í viðtali á Fox News að óreiðan og stjórnleysið í Bandaríkjunum hjálpaði Trump. Fylgi hans væri að aukast vegna þessa.

„Því meiri óreiða og stjórnleysi og skemmmdarverk og ofbeldi, því betra er það fyrir augljósa valið um hver er bestur til að tryggja lög og reglu,“ sagði hún.

Við fyrstu sýn, virðist það rétt hjá Conway. Trump hefur sótt á í skoðanakönnunum að undanförnu. Hann hefur í allt sumar haldið því fram að anarkistar sitji um borgir Bandaríkjanna og að Demókratar muni rústa Bandaríkjunum, verði Joe Biden kjörinn forseti.


Tengdar fréttir

„Flóðbylgja ósanninda“ í langri ræðu Trump

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, flutti lokaræðu landsfundar Repúblikanaflokksins í nótt þar sem hann tók formlega við tilnefningu flokksins. Í rúman klukkutíma gagnrýndi hann Joe Biden harðlega, fegraði eigin viðbrögð við faraldri Covid-19 og lofaði bóluefni fyrir lok þessa árs.

Þorri atburðarásarinnar í Kenosha fangaður á myndband

Lögreglan í Kenosha í Bandaríkjunum handtók í gær Kyle Rittenhouse, sem er sautján ára, fyrir að skjóta tvo til bana og særa þriðja í mótmælum í borginni á dögunum. Atburðarásin náðist að stórum hluta á myndbönd.

„Fínpússaður“ Trump til sýnis

Fínpússuð útgáfa af Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, var til sýnis á öðru kvöldi landsfundar Repúblikanaflokksins. Með því vilja Trump-liðar ná til kjósenda sem eru ekki sáttir við framferði forsetans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×