Ólafur: Kom öllum á óvart sem horfðu á þetta í Stúkunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2020 22:05 Valdimar Þór Ingimundarson kemur Fylki í 2-0 gegn Fjölni. Hann er ekki á förum frá Fylki að sögn þjálfara liðsins. vísir/vilhelm
Ólafur Stígsson, annar þjálfara Fylkis, var sáttur með sína menn eftir sigurinn á Fjölni, 2-0, í kvöld. „Mér fannst þetta heilt yfir sanngjarn sigur. Við vorum töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og áttum að skora nokkur mörk þá. Við komum líka nokkuð sterkir inn í seinni hálfleikinn og náðum marki,“ sagði Ólafur í samtali við Vísi að leik loknum. „Svo féllum við aðeins til baka og þeir lágu á okkur. Þeir fengu ágætis færi og Aron [Snær Friðriksson] varði einu sinni mjög vel. En það er s.s. hans hlutverk að vera til staðar. Ég er mjög ánægður.“ Ólafur fannst sínir menn spila af miklum krafti í leiknum. „Ákefðin var mjög há. Svo var gott flæði á boltanum. Ég er ánægður með það og baráttuna í strákunum.“ Líkt og í síðasta leik Fylkis, 1-1 jafntefli við Stjörnuna, skoraði Ásgeir Eyþórsson með skalla eftir hornspyrnu Daða Ólafssonar frá hægri. „Ásgeir var einmitt búinn að tala um að hann væri ekkert búinn að skora í sumar. Það var kominn tími á hann og gaman að hann skori í tveimur leikjum í röð,“ sagði Ólafur. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði annað mark Fylkis á 89. mínútu. Í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport í gær sagði Guðmundur Benediktsson að möguleiki væri á að Valdimar væri á förum frá Fylki. Ólafur segir að Fylkismenn hafi komið af fjöllum þegar Guðmundur varpaði þessu fram. „Það liggur ekkert fyrir þar. Þetta kom öllum á óvart sem horfðu á þetta í Stúkunni,“ sagði Ólafur sem á ekki von á öðru en að Valdimar klári tímabilið með Fylki.
Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira