Sport

Sautjánfaldur Íslandsmeistari í badminton ráðinn landsliðsþjálfari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Johannesson er nýr landsliðsþjálfari Íslands.
Helgi Johannesson er nýr landsliðsþjálfari Íslands. Mynd/Badmintonsamband Íslands

Badmintonsamband Íslands hefur gengið frá ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara og þar á ferðinni einn sigursælasti badmintonspilari Íslands.

Helgi Jóhannesson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í badminton. Hann tekur við starfinu af Tinnu Helgadóttur og mun Helgi hefja störf 1. september næstkomandi.

Helgi hefur verið í Afreks- og landsliðsnefnd Badmintonsambandsins síðustu ár og einnig hefur Helgi verið í stjórn sambandsins síðustu fjögur ár en mun nú fara úr stjórn til þess að taka við starfi landsliðsþjálfara.

Helgi á að baki mjög farsælan feril sem leikmaður en hann lék 67 A-landsleiki fyrir Ísland. Helgi er líka sautjánfaldur Íslandsmeistari í badminton þar af fimm sinnum í einliðaleik og tíu sinnum í tvíliðaleik.

„Þetta er krefjandi en jafnframt spennandi og skemmtilegt verkefni. Ég er að taka við góðu búi frá Tinnu Helgadóttur og er það nú hlutverk mitt að halda því starfi áfram og jafnframt byggja ofan á það,“ segir Helgi Jóhannesson í fréttatilkynningu frá Badmintonsambandi Íslands.

„Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á landsliðsstarfinu í kjölfar aukins fjármagns úr Afrekssjóði ÍSÍ sem hefur nýst landsliðs- og afreksstarfi sambandsins mjög vel. Við erum að sjá að okkar bestu leikmenn eru farnir að fara meira út að keppa auk þess sem ungir leikmenn eru einnig farnir að fara meira erlendis til þess að taka þátt í alþjóðlegum mótum sem er gríðarlega mikilvægt til þess að öðlast reynslu. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni og tel framtíðina bjarta í íslensku badmintoni,“ segir Helgi Jóhannesson

Helgi hefur lokið BWF / BEC Level 1 þjálfaramenntun auk þess sem hann hefur sótt námskeið í Danmörku á sviði afreksþjálfunar.

Helgi starfaði sem unglingalandsliðsþjálfari á tímabilinu 2014-2015 og sem aðstoðarlandsliðsþjálfari á tímabilinu 2015-2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×