Íslenski boltinn

Nær Dagný Brynjars að brjóta Blikamúrinn í kvöld eins og fyrir fimm árum?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir í leik með Selfossi í Pepsi Max deild kvenna í sumar.
Dagný Brynjarsdóttir í leik með Selfossi í Pepsi Max deild kvenna í sumar. Vísir/Vilhelm

Dagný Brynjarsdóttir braut sér leið í gegnum mikinn Blikamúr 1. september 2015 og nú rétt tæpum fimm árum síðar fær hún annað tækifæri til að endurtaka leikinn.

Breiðablik tekur á móti Selfossi í Pepsi deild kvenna í kvöld en Blikakonur hafa enn ekki fengið á sig mark í sumar. Blikar settu met í síðasta leik með því að verða fyrsta liðið til að spila fyrstu níu leiki Íslandsmótsins án þess að fá á sig mark.

Mótherji Breiðabliks að þessu sinni þekkir það hins vegar að enda langa bið andstæðinga Blika eftir marki. Það var einmitt Selfossliðið sem braut niður Blikamúrinn sumarið 2015.

Breiðablikskonur voru þá búnar að spila í 1163 mínútur á Íslandsmótinu án þess að fá á sig mark og Sonný Lára Þráinsdóttir hafði haldið hreinu í tólf leikjum í röð.

Leikurinn fór fram 1. september 2015 á Selfossi og Blikar komust í 1-0 í leiknum. Á 63. mínútu tókst Dagnýju Brynjarsdóttur hins vegar að jafna leikinn og vera sú fyrsta í meira en nítján klukkutíma til að skora hjá Blikavörninni.

Dagný fylgdi þá eftir þegar Sonný Lára Þráinsdóttir varði skot Evu Lindar Elíasdóttur í markvinkilinn og út. Dagný, Eva Lind og Sonný Lára verða væntanlega allar í eldlínunni í leiknum í kvöld.

Dagný Brynjarsdóttir var aðeins ein af fjórum leikmönnum sem skoruðu hjá Sonný Láru sumarið 2015 en hinar voru Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir í Aftureldingu, Margrét María Hólmarsdóttir í KR og Lillý Rut Hlynsdóttir í Þór/KA.

Síðust til að skora hjá þessu Blikaliði var Fylkiskonan Sæunn Rós Ríkharðsdóttir í lokaumferðinni í fyrra. Síðan eru liðnar 829 mínútur.

Leikur Breiðabliks og Selfoss hefst klukkan 19.15 á Kópavogsvelli í kvöld en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá klukkan 19.05.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×