Sport

Anníe Mist er enn að lyfta 89 kílóum komin fjóra mánuði á leið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir með lóðin á lofti.
Anníe Mist Þórisdóttir með lóðin á lofti. Skjámynd/Instagram/anniethorisdottir
Bumban og óléttan koma ekki í veg fyrir að Anníe Mist Þórisdóttir tekur áfram á lóðunum í æfingasalnum.

Íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir er að æfa á fullu þótt hún eigi von á sér í haust. Hún segist ekki taka neina áhættu en er samt að lyfta þyngdum sem fær meðalmanninn til að svitna.

Anníe er vön að lyfta þungum lóðum og að taka vel á því á æfingum. Í viðtölum segist hún leggja ofurkapp á að fylgjast vel með púlsinum sínum nú þegar hjartað hennar slær fyrir tvo.

Anníe Mist hefur lagt mikla áherslu á það að hún taki vel á móti því hlutverki að vera fyrirmynd fyrir konur sem halda áfram að æfa með óléttunni og vill sýna það að konur geti átt barn og komist aftur í fremstu röð í CrossFit. Hún ætlar sér að taka upp þráðinn í CrossFit eftir að hún eignast dóttur sína.

Anníe Mist vill líka gefa aðdáendum sínum og áhugasömum tækifæri til að sjá hvernig hún er að æfa nú þegar hún er komin fjóra mánuði á leið.

Anníe Mist setti þannig inn myndband af sér að lyfta þungum lóðum en það hlýtur að vera mjög sjaldgæft að sjá ólétta konu leika sér með svona miklar þyngdir. Þetta er nógu erfitt fyrir íþróttakonu í hundrað prósent formi.

Anníe er þarna að vinna með 89 kíló í fyrri hluta í jafnhöttun (Clean) og þá er hún að lyfta 80 kílóum í snörun. Það magnaða er að þarna hún að passa sig því Anníe tekur það sérstaklega fram að hún geti lyft meiri þyngdum.

Þetta myndband með lyftum Anníe Mistar má sjá hér fyrir neðan.








Tengdar fréttir

Anníe Mist ræðir meðgönguna og framhaldið: Missti lystina á morgunmatnum

Anníe Mist Þórisdóttur stendur í dag á miklum tímamótum á sínum CrossFit ferli en hún er barnshafandi og þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í haust. Anníe ræddi meðgönguna og framhaldið í hlaðvarpsþættinum "Make PODS Great Again“ og gaf þar mikla innsýn í líf sitt sem barnshafandi íþróttakonu.

Fyrsta CrossFit dóttirin er að fara að eignast dóttur

Anníe Mist Þórisdóttir opinberaði það í Youtube viðtali við Rory Mckernan að hún viti kyn barnsins síns sem er vona á í ágústmánuði. Hún ræðir þar hvernig hún hugsar sér að æfa með meðgöngunni og hvað taki við eftir hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×