Sport

Anníe Mist og Katrín Tanja eiga von á sinni „dóttur“ í apríl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru miklar vinkonur.
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru miklar vinkonur. Mynd/Instagram/anniethorisdottir

Samstarfsverkefni íslensku CrossFit heimsmeistaranna Anníe Mistar Þórisdóttur og Katrínar Tönju Davíðsdóttur verður frumsýnt í næsta mánuði en báðar sögðu þær frá því á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru ekki aðeins tvöfaldir heimsmeistarar í CrossFit og einu gullverðlaunahafar Íslands á heimsleikunum í CrossFit því þær eru líka miklar vinkonur og samstarfsaðilar.

Nú ætlar þær að stíga eitt skref lengra í að markaðssetja hugtakið „Dóttir“ en þær boða að nýja samstarfsverkefni þeirra komi fram á nýju Instagram síðunni @dottir.

Anníe Mist hefur þegar komið að því að búa til æfinguna „Dóttir“ sem keppt var á CrossFit stórmótinu í Dúbaí og Katrín Tanja gaf út bókina „Dóttir“ á síðasta ári. Anníe Mist er fyrsta dóttirin sem skapaði sér nafn í CrossFit heiminum en Katrín Tanja fylgdi árangri hennar síðan eftir og vakti enn meiri athygli á styrkleika íslensku dætranna.

Nú ætla þær tvær að vinna saman og eru báðar greinilega mjög spenntar fyrir því að kynna sínar hugmyndir fyrir heiminum.

„Svo mikið af hugmyndum og svo mikið að hlutum sem við viljum deila með ykkur og öllum heimilunum. Þetta er loksins að lifna við hjá okkur,“ skrifaði Anníe Mist á Instagram síðu sína eins og sjá má hér fyrir neðan.









„Við erum alltaf sterkari saman en þegar við erum einar á ferð,“ skrifar Anníe Mist líka í pistli sínum og þar má sjá myndir af þeim Katrínu Tönju saman, bæði að faðmast en líka að standandi á höndum í takt.

Það má búast við því að samstarfsverkefni þeirra tengist eitthvað alþjóðlega Reykjavík CrossFit mótinu sem fer fram í Reykjavík frá 3. til 5. apríl næstkomandi. Það er þó meira ágiskun en eitthvað annað.

Þegar Katrín Tanja Davíðsdóttir varð heimsmeistari í CrossFit í annað skiptið árið 2016 hafði hún jafnað afrek Anníe Mistar og unnið tvö ár í röð. Þá hafði engin önnur kona orðið tvisvar sinnum heimsmeistari en síðan hefur Tia-Clair Toomey komist fram úr þeim báðum.

Nú er Anníe Mist í barnsburðarleyfi og Katrín Tanja er að vinna sig til baka úr bakmeiðslum sem höfðu meðal annars af henni CrossFit mótið í Dúbaí. Þrátt fyrir meiðslin þá er Katrín Tanja samt búin að tryggja sér sæti á heimsleikunum í gegnum „The Open“ þar sem hún var í hópi tuttugu efstu. Anníe Mist var það líka en gaf eftir sætið sitt þegar hún varð ólétt.


Tengdar fréttir

Anníe Mist ræðir meðgönguna og framhaldið: Missti lystina á morgunmatnum

Anníe Mist Þórisdóttur stendur í dag á miklum tímamótum á sínum CrossFit ferli en hún er barnshafandi og þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í haust. Anníe ræddi meðgönguna og framhaldið í hlaðvarpsþættinum "Make PODS Great Again“ og gaf þar mikla innsýn í líf sitt sem barnshafandi íþróttakonu.

Fyrsta CrossFit dóttirin er að fara að eignast dóttur

Anníe Mist Þórisdóttir opinberaði það í Youtube viðtali við Rory Mckernan að hún viti kyn barnsins síns sem er vona á í ágústmánuði. Hún ræðir þar hvernig hún hugsar sér að æfa með meðgöngunni og hvað taki við eftir hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×