Körfubolti

Hjalti Þór: Menn verða bara að bíta á jaxlinn og halda á­fram

Árni Jóhannsson skrifar
Hjalti á hliðarlínunni í kvöld.
Hjalti á hliðarlínunni í kvöld. vísir/daníel

KR bar sigurorð af Keflvíkingum í 18. umferð Dominos deildarinnar í körfuknattleik fyrr í kvöld. Leikið var í DHL höllinni og varð úr svakalegur leikur sem endaði með sex stiga sigri KR 88-82.

Þjálfari Keflvíkinga var að vonum örlítið dapur með úrsltin en hann var fyrst spurður að því afhverju hans menn tóku ekki leikhlé fyrstu 37 mínútur leiksins. Ekki veitti af á löngum köflum.

„Það kom alveg til greina. Ég líka treysti strákunum inn á vellinum og þeir komu nokkrum sinnum vel til baka en ég ákvað líka að eiga leikhléin inni í lokin. Hvort það var rétt eða vitlaust veit ég ekki og við komumst aldrei að því úr þessu. Þetta var samt leikur sem gat dottið hvoru megin og var stál í stál en ég var rosalega ósáttur hvað menn voru að láta ýta sér út úr öllu. Við töpum boltanum 16 sinnum og þar af 10 sinnum í fyrri hálfleik og það er ólíkt okkur og allt of mikið á móti svona liði. En númer 1, 2 og 3 þá riðlaðist sóknarleikurinn okkar of mikið af því að við vorum að pirra okkur yfir því að þeir voru að ýta okkur of mikið“.

Dominykas Milka skoraði ekki nema eina körfu í seinni hálfleik og var Hjalti spurður hvort menn væru orðnir of þreyttir eftir hraðmótið sem hefur verið síðan um jól og áramót.

„Ég held ekki. Hann hefur verið að spila 36-37 mínútur í vetur hjá okkur og hann gerði það. Hann var í einhverjum pirringi og vildi fá meira frá dómurunum en menn verða bara að bíta á jaxlinn og halda áfram“.

Hjalti var á því að það væri hellingur sem hans menn þyrftu að bæta fyrir úrslitakeppnina sem er á næsta leyti.

„Hellingur sem við þurfum að bæta. Alveg hellingur. Helst varnarlega en þeir eru að fá helling af opnum skotum og við gleymum því að tala saman varnarlega nokkrum sinnum í röð og gleymum því að pikka upp menn. Sóknarlega þá látum við ýta okkur út úr aðgerðum okkar. Við förum að pirra okkur og það er bara hellingur sem við þurfum að laga“.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×