Innlent

Gular og appelsínugular viðvaranir frá hádegi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vindaspáin fyrir kvöldið ber með sér hvassviðri á miðhálendinu, suðvesturhorninu og Vestfjörðum.
Vindaspáin fyrir kvöldið ber með sér hvassviðri á miðhálendinu, suðvesturhorninu og Vestfjörðum. Veðurstofa Íslands

Veðurstofan hefur boðað gula veðurviðvörun vegna hvassviðris við Faxaflóa í dag. Hún tekur gildi á hádegi og stendur yfir til klukkan 21 í kvöld. Gular og appelsínugular viðvaranir taka jafnframt gildi á Suðurlandi og miðhálendinu í hádeginu og má þar gera ráð fyrir erfiðu ferðaveðri.

Eftir því sem líður á daginn skánar veðrið syðst en versnar eftir því sem vestar dregur. Þannig tekur gul viðurvörun gildi við Breiðafjörð seinni partinn áður en appelsínugult ástand tekur við á Vestfjörðum vegna hríðarveðurs. Gert er ráð fyrir að það standi fram yfir hádegi á morgun, laugardag.

Vindur verður víða á bilinu 15-23 m/s á Suðvesturhorninu í hádeginu í dag og má gera ráð fyrir vindhviðum allt að 35 m/s við fjöll, ekki síst á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Ökumenn eru því beðnir um að hafa hugann við aksturinn og gæta að ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Búist er við afmörkuðum samgöngutruflunum á Suðurlandi seinni partinn og ekki útilokað að vegum verði lokað. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á Suðurlandi og ganga frá lausum munum til að forðast tjon.

Á Breiðafirði og miðhálendinu er aukinnheldur spáð snjókomu og skafrenningi. Því er ekki útilokað að skyggni verði mjög lítið á köflum og því eru ferðalög ekki sögð æskileg. Af appelsínugulu viðvöruninni á Vestfjörðum er sömu sögu að segja; búast má við talsverðri eða mikilli snjókomu eða éljagang með skafrenning og lélegu skyggni, einkum í ofankomu. Áframhaldandi slæm akstursskilyrði, samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar.

Fólki er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×