Innlent

Gera ráð fyrir að Hellisheiði verði lokað

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi má gera má ráð fyrir því að Hellisheiði verði lokað fyrir hádegi en það veltur á veðri og færð.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi má gera má ráð fyrir því að Hellisheiði verði lokað fyrir hádegi en það veltur á veðri og færð. vísir/vilhelm

Fyrirhugað er að manna lokunarpósta beggja megin við Hellisheiði núna um klukkan 11. Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi má gera má ráð fyrir því að veginum verði lokað skömmu síðar, en það veltur á veðri og færð.

Að því er kemur fram í tilkynningunni er óvíst hversu lengi sú lokun muni standa yfir. Vegagerðin ætlar að reyna eftir fremsta megni að halda Þrengslavegi opnum en það veltur á veðrinu hvernig það muni ganga.

Frekari upplýsingar má finna á vef Vegagerðarinnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×