Telja núverandi opnunartíma leikskóla borgarinnar lífsnauðsynlega mörgum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. janúar 2020 12:30 Leikskólakrakkar gæða sér á kakó á Austurvelli í jólastemningu. Vísir/Vilhelm
Hópur fimmtán kvenna skorar á borgarráð að hafna breytingum á opnunartíma leikskóla sem nýverið voru samþykktar í skóla- og frístundaráði. Breytingin felur í sér að almennur opnunartími leikskóla borgarinnar breytist úr 7:30-17:00 í 7:30-16:30. Akureyri, Reykjanesbær og Kópavogur eru meðal sveitarfélaga sem hafa þegar gert breytinguna. Minnihlutinn í Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis mótmælt breytingunum. Hildur Björnsdóttir, Eyþór Arnalds og Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, eru meðal þeirra sem látið hafa í sér heyra vegna málsins. „Við vitum það að fæstir foreldrar ráða sínum vinnutíma eða hafa sveigjanlegan vinnutíma þannig að þetta mun setja mjög margar fjölskyldur í vanda, og ég tala nú ekki um að ferðatími fólks til og frá vinnu hefur verið að lengjast á undanförnum árum,“ sagði Marta í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Um 150 börn í Reykjavík sótt á síðasta korterinu Skóla- og frístundaráð byggir ákvörðun sína á tillögum stýrihóps um umbætur í leikskólamálum. Í skýrslu hópsins kemur fram að foreldrar ríflega níu hundruð barna séu með dvalarsamning sem lýkur eftir klukkan hálf fimm. Það svarar til 18 prósenta leikskólabarna í Reykjavík. Einungis um helmingur þeirra séu hins vegar almennt sótt á þeim tíma. Átta prósent á bilinu 16:30-16:45 og svo þrjú prósent síðasta korterið til klukkan 17. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, tjáði Mbl.is á þriðjudag að miðað við þessar tölur séu sterkar líkur á að breytingin muni ekki hafa mikil áhrif. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs.Vísir/Baldur Breytingin, sem á eftir að fara í gegnum borgarráð og borgarstjórn, á að taka gildi þann 1. apríl. Foreldrar í erfiðri stöðu sem þurfa nauðsynlega á þessum hálftíma að halda í lok dags geti sótt um framlengdan aðlögunartíma til 1. ágúst. Stýrihópinn skipuðu auk Skúla þau Diljá Ámundadóttir og Egill Þór Jónsson en starfsmaður hópsins var Guðlaug Gísladóttir. Með hópnum störfuðu Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri á Nóaborg, Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjóri á Kvistaborg, Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskóla, Sigríður Sigurjónsdóttir leikskólakennari í Rauðhóli og Valborg Hlín Guðlaugsdóttir leikskólastjóri Langholti. Tillagan snertir þá foreldra sem hafa keypt tíma til annað hvort 16:45 eða 17:00. Þetta eru um 18% foreldra barna en í könnun sviðsins á nýtingu tímans kom fram að einungis helmingur þeirra sem kaupir tímann nýti hann í raun. Áhrifin af breytingunum verður því væntanlega minni.— Líf Magneudóttir (@lifmagn) January 14, 2020 Svona skiptist vistunartíminn niður samkvæmt skýrslu starfshópsins. Vísar hann til reyndra leikskólastjórnenda sem telji það ekki viðkvæmasta foreldrahópinn, til dæmis einstæða foreldra, sem nýti sér síðasta hálftímann. Algengara sé að foreldrar hafi tímann uppi í erminni ef þau skyldu þurfa að nota hann. Afmarkaðar femíniskar forsendur Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, á einnig sæti í skóla- og frístundaráði. Hún hefur staðið í ströngu á Twitter að svara fyrir breytinguna. Margir gera athugasemd við það að breytingin á opnunartíma leikskólanna muni á endanum hafa áhrif á starfshlutfall móður mun frekar en föður. Þar segir hún að berjast þurfi fyrir styttri vinnuviku og sveigjanleika fyrir foreldra en ekki lengri dagvistun. Hún vísar í rannsókn sem sýni fram á aukna streitu hjá börnum sem dvelji langdvölum á leikskólum. Þá minnir hún á að viðkvæmu foreldahóparnir séu ekki þeir sem nýti sér þennan auka hálftíma í lok dags, eins og ætla mætti. „Hvað finnst þér um langa viðveru barna á leikskólum og níu tíma vistun þeirra? Hefurðu pælt í femíniska vinklinum varðandi starfsumhverfi starfsmanna í leikskólum? Eða finnst þér bara að atvinnulífið eigi að ganga fyrir á einhverju afmörkuðum femíniskum forsendum?“ spyr Líf einn gagnrýnanda á Twitter. Telja þjónustuna nauðsynlega Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar, er meðal þeirra fimmtán kvenna sem mótmæla fyrirhuguðum breytingum. „Við getum vel tekið undir nauðsyn þess að létta álagi af leikskólabörnum og starfsfólki leikskóla. Borgin gæti stuðlað að slíku með styttingu vinnuvikunnar, með bættum starfsaðstæðum, hærri launum og minna álagi á starfsfólk leikskólanna. Þessi aðgerð verður þó aðeins til að auka á álag og vanlíðan hjá hópi sem má einfaldlega ekki við því,“ segir í pistli kvennanna. Sóley Tómasdóttir er ein þeirra fimmtán sem skrifa pistil á Vísi í dag þar sem breytingunum er harðlega mótmælt.Vísir/Egill „Vissulega er það minnihluti foreldra sem er með vistunartíma fyrir börnin sín til klukkan fimm á daginn og enn færri sem nýta hann allan, en fyrir flest þetta fólk er þessi þjónusta nauðsynleg. Og það hefur aldrei talist til raka gegn þjónustu að fá þurfi á henni að halda (Eða hvað, á að leggja niður fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna? Heimahjúkrun?). Í öðru lagi er það álagið. Þó mögulega geti breytingarnar haft jákvæð áhrif á álag á starfsfólk er alls ekki útséð um að áhrifin verði jákvæð á börn. Álagið mun aftur á móti aukast á þá foreldra sem þurfa á þjónustunni að halda, foreldra sem eru í flestum tilfellum undir gríðarlegu álagi fyrir.“ Eigi að teljast til grunnþjónustu Hópurinn telur níu og hálfs tíma vistunartíma leikskóla á stóru landssvæði eins og Reykjavík teljast til grunnþjónustu. „Alls konar fólk er í vinnu með viðveruskyldu á ákveðnum tímum, t.d. 8-16. Ef við tökum dæmi um konu sem býr í Grafarvogi og vinnur á Landspítalanum þarf hún að vera komin með barn sitt á leikskólann klukkan 7:30 til að vera mætt í vinnu á tilsettum tíma og ekkert má út af bregða til að hún komist að sækja barn sitt klukkan 16:30. Annað dæmi gæti verið heimili þar sem er barn í fyrstu bekkjum grunnskóla og annað á leikskóla. Grunnskólinn opnar klukkan 8 svo það er í fyrsta lagi þá sem viðkomandi foreldri getur lagt af stað til vinnu og er þá komið í vinnuna (gefið að hún sé í Reykjavík) 15-30 mínútum seinna. Fyrir þetta foreldri þarf leikskólinn að vera opinn til klukkan 17 ætli það að ná átta klukkustunda vinnudegi.“ Opnunartími á leikskólum sjö sveitarfélaga sem starfshópurinn kynnti sér til samanburðar. Ótal margt fólk vinni ekki bara störf með viðveruskyldu, heldur hafi engan annan til að taka við álaginu sem felist í því að þurfa að skutla og sækja börn ásamt því að skila af sér vinnuskyldunni. „Sum eru einstæð, önnur eiga maka sem vinnur erlendis eða á vöktum, og svo eru ótal mörg sem eiga ekki stuðningsnet í nágrenninu.“ Skúli Helgason ræddi málið í Harmageddon á X-inu 977 í morgun.
Börn og uppeldi Reykjavík Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Stytta opnunartíma leikskóla í Reykjavík Almennur opnunartími verður þannig frá klukkan 07:30 til 16:30 í stað 17:00. 14. janúar 2020 18:04 Stytting leikskólanna bitni illa á fjölda foreldra og sérstaklega konum Eftir 1. apríl verða leikskólar borgarinnar opnir hálftíma skemur en í dag. 15. janúar 2020 22:28 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira
Stytta opnunartíma leikskóla í Reykjavík Almennur opnunartími verður þannig frá klukkan 07:30 til 16:30 í stað 17:00. 14. janúar 2020 18:04
Stytting leikskólanna bitni illa á fjölda foreldra og sérstaklega konum Eftir 1. apríl verða leikskólar borgarinnar opnir hálftíma skemur en í dag. 15. janúar 2020 22:28