Innlent

Lög­reglu­stjórinn ekki van­hæfur í ná­granna­deilu­máli í Flóanum

Atli Ísleifsson skrifar
Hreggviður Hermannsson segir lögregluembættið á Suðurlandi leggja sig í einelti.
Hreggviður Hermannsson segir lögregluembættið á Suðurlandi leggja sig í einelti.

Mál sem snýr að illvígum nágrannadeilum í Flóahreppi verður tekið til efnislegrar meðferðar í Héraðsdómi Suðurlands. Þetta varð ljóst eftir að Landsréttur felldi úr gildi úrskurð dómstólsins um að embætti lögreglustjórans á Suðurlandi væri vanhæft til að fara með mál gegn Hreggviði Hermannssyni, bónda í Langholti 1 í Flóahreppi.

Lögregluembættið gaf út ákæru á hendur Hreggviði í mars á síðasta ári fyrir eignaspjöll og brot á vega- og umferðarlögum, en málið er angi af illvígum nágrannadeilum sem staðið hafa um árabil á milli Hreggviðs annars vegar og Ragnars Vals Björnssonar og Fríðar Sólveigar Hannesdóttur, bænda í Langholti 2, hins vegar.

Verjandi Hreggviðs fór fram á á vanhæfi lögreglustjórans á þeim grundvelli að tveir af þremur starfsmönnum á ákærusviði embættisins tengist hjónunum að Langholti 2. Dóttir Fríðar sé löglærður fulltrúi á sviðinu og kollegi hennar tók að sér verkefni sem tengdust deilunum fyrir Ragnar Val þegar hann vann sjálfstætt.

Sagði verjandi Hreggviðs að Hreggviður hafi verið lagður í einelti af lögreglunni svo árum skipti vegna fyrrnefndra tengsla. Hafi áhugi embættisins á honum jaðrað við þráhyggju.

Að neðan má sjá frétt Stöðvar 2 um málið frá árinu 2014.

Í úrskurði Landsréttar er hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnislegrar meðferðar. Segir að ekki væru að finna nein gögn sem bæru með sér að fulltrúarnir væru vanhæfir til að annast rannsókn á málinu. Þá hefði mögulegt vanhæfi fulltrúa eitt og sér ekki áhrif á hæfi lögreglustjóra samkvæmt stjórnsýslulögum.

„Þá yrði ekki séð að fyrir hendi væru önnur atvik eða aðstæður sem fallnar væru til að draga óhlutdrægni lögreglustjórans með réttu í efa,“ segir í úrskurðarorðum.

Deilt um landspildu

Umræddar deilur í Flóanum hafa oft ratað í fjölmiðla, en á síðasta ári var Ragnar Valur dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka á Hreggvið í desember 2017. Dómnum var áfrýjað til Landsréttar.

Deilan snýst í grunninn um landspildu eftir makaskipti á tveimur jörðum árið 1987 og hafa ásakanir gegnið á víxl æ síðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×