Lífið

Flutti tvö lög og gerði allt vitlaust eftir þau bæði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cristina Rae gæti sannarlega farið alla leið.
Cristina Rae gæti sannarlega farið alla leið.

Cristina Rae mætti á dögunum í áheyrnarprufu í raunveruleikaþættinum America's Got Talent og sló þar rækilega í gegn.

Rae er einstæð móðir og vonast til að geta gefið syni sínum gott líf. Hún byrjaði á því að flytja lagið In The Air Tonight eftir Phil Collins og allt varð vitlaust í salnum.

Einn af dómurunum Simon Cowell vildi aftur á móti fá að heyra annað lag og kom það mörgum á óvart þar sem salurinn hafði tekið vel í fyrra lagið.

Þá flutti hún lagið Gimme Shelter með The Rolling Stones og þakið ætlaði af húsinu.

Flutningurinn var það góður að Heidi Klum, einn af dómurunum, sá sig knúna til að ýta á gullhnappinn sem skilar Rae beint í undanúrslit og þarf hún því næst að koma fram í beinni útsendingu.

Hér að neðan má sjá prufuna sem gæti breytt lífi Rae.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×