Innlent

Andlát vegna Covid-19

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Einn lést af völdum sjúkdómsins Covid-19 á Landspítalanum síðasta sólarhringinn.
Einn lést af völdum sjúkdómsins Covid-19 á Landspítalanum síðasta sólarhringinn.

Sjúklingur lést undanfarinn sólarhring á Landspítala vegna Covid-19 sjúkdómsins. Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Landspítalinn vottar aðstandendum sjúklingsins samúð í tilkynningunni.

Alls hafa því átta látist vegna veirunnar hér á landi. Alls hafa 1.675 smit greinst hér á landi og 751 náð bata.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×