Áfram í gæsluvarðhaldi 10. júní 2013 17:59
Tveir karlar, 19 og 20 ára, voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 8. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en það var gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir, sem hafa báðir kært úrskurðinn til Hæstaréttar, voru handteknir í síðustu viku í tengslum við rán og frelsissviptingu í Grafarvogi í byrjun mánaðarins. Tveir aðrir karlar, 18 og 23 ára, sátu um tíma einnig í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, en þeim var sleppt úr haldi lögreglu í síðustu viku. Allnokkrir til viðbótar hafa verið kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni í þágu rannsóknarinnar, sem miðar vel. Eins og fram hefur komið ruddust árásarmenn inn í íbúð karls á sjötugsaldri í Grafarvogi, bundu hann á höndum og fótum og stálu frá honum átta skotvopnum úr vopnaskáp, auk skotfæra. Brotaþoli og árásaraðilar þekkjast ekki, en varsla skotvopnanna á heimili mannsins var í fullu samræmi við það sem reglur kveða á um. Skotvopnin voru endurheimt samdægurs, en þau fundust við húsleit í Hafnarfirði. Tvær aðrar húsleitir voru framkvæmdar í sama bæjarfélagi og fundust þá nokkur vopn til viðbótar, en í báðum tilvikum var um að ræða húsnæði sem tengist Outlaws, að sögn lögreglunnar.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira