Sjáðu sóknina og sigurkörfuna sem nánast ómögulegt er að lýsa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2019 23:00 Jarred Dixon skorar sigurkörfuna. Mynd/Twitter/@MissouriStBears
Karfa helgarinnar var án efa í bandaríska háskólakörfuboltanum en það er hægt að bóka það að þar var ekki farið eftir leikskipulagi þjálfaranna. Jarred Dixon tryggði Missouri State dramatískan sigur á Illinois State í bandaríska háskólakörfuboltanum um helgina. Vonin var veik hjá Missouri State þegar 7,8 sekúndur voru eftir enda var liðið tveimur stigum undir og ekki með boltann. Það er erfitt að lýsa því sem gerðist þessar síðustu sekúndur leiksins því annar eins darraðadans hefur sjaldan sést áður. Illinois State tókst að kasta frá sér boltanum en það átti eftir mikið að gerast eftir það þar sem hver leikmaðurinn á fætur öðrum reyndi að klófesta knöttinn. Boltinn endaði loksins hjá Jarred Dixon sem náði að skjóta áður en klukkan rann út. Jarred Dixon var reyndar við miðju vallarins en skotið fór spjaldið ofan í og Missouri State fagnaði ótrúlegum sigri. Það er eitt að hitta frá miðju á síðustu sekúndu leiks en hvað þá að gera það eftir það sem á undan gekk á þessum furðulegum lokasekúndum. Hér fyrir neðan má sjá þessa ótrúlegu sigurkörfu frá tveimur sjónarhornum.YEP. THAT. HAPPENED. The shot heard around the Q!!!#MSUBears#SCTop10#PackTheQpic.twitter.com/wYMm0zsePV — Missouri State Athletics (@MissouriStBears) February 11, 2019 CLUTCH!!!@JayDixon_11 BEATS THE BUZZER AND SAVES THE DAY!!!!#MSUBears#SCTop10pic.twitter.com/zSkd27AYoV — MSU Bears Basketball (@MSUBearsHoops) February 10, 2019
Körfubolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira