Erlent

Taf­ir á hreins­un­ar­starf­in­u í Fuk­us­him­a

Samúel Karl Ólason skrifar
Uppsöfnun geislavirks úrgangs er mikið vandamál í Fukushima.
Uppsöfnun geislavirks úrgangs er mikið vandamál í Fukushima. AP/Pablo M. Diez

Yfirvöld Japan hafa endurskoðað áætlun varðandi hreinsun á svæðinu við kjarnorkuverið í Fukushima. Tafir hafa orðið á fjarlægingu þúsunda eldsneytisstanga sem eru í kælilaugum í kjarnorkuverinu. Um lykilskref í hreinsun svæðisins er að ræða.

Kjarnaofnar orkuversins bræddu úr sér eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna miklu árið 2011. Yfirvöld landsins og forsvarsmenn fyrirtækisins Tokyo Electric Power Co. hafa sammælst um 30 til 40 ára áætlun um hreinsun svæðisins. Blaðamenn AP fréttaveitunnar hafa tíundað helstu vandamálin í þessu áratugalanga ferli.



Eitt af stærstu vandamálunum snýr að rúmlega 4.700 eldsneytisstöngum sem eru enn í fimm kjarnaofnum í orkuverinu og þar af þremur sem bræddu úr sér. Stangirnar liggja í kælilaugum en ef vatnið læki frá þeim, fyrir einhverjar sakir, myndu stangirnar bráðna og gefa frá sér umfangsmikla geislun.



Fjarlægingu þeirra hefur nú verið frestað í allt að tíu ár þar sem þörf er á miklum undirbúningi áður en hægt er að fjarlægja þær. Miðað við núverandi áætlanir eiga allar stangirnar að hafa verið fjarlægðar fyrir árið 2031.

Reiknað er með því að rúmlega tíu þúsund starfsmenn þurfi til verksins á ári hverju og stendur til að ráða einhverja þeirra að utan. Óttast er að öldrun Japana muni setja strik í reikning með árunum.

Sjá einnig: Yfirmenn Fukushima-kjarnorkuversins sýknaðir



TEPCO geymir um 1,2 milljónir tonna af geislavirku vatni í tönkum á svæðinu og er ekki hægt að losa það út í náttúruna. Um 170 tonn bætast í tankana á degi hverjum en vatnið er notað til að kæla eldsneytisstangirnar. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast geta geymt 1,37 milljónir tonna og til ársins 2022.

Áætlað er að finna leiðir til að losa vatnið aftur út í náttúruna með eins litlum áhrifum á umhverfið og mögulegt er. Annars geti mögulega komið upp mikið vandamál seinna meir, verði annar jarðskjálfti eða annars konar hamfarir.

Þrátt fyrir að búið sé að hreinsa vatnið verulega og til standi að hreinsa það betur, verður tritíum enn í því en sérfræðingar segja það ekki skaðsamt mönnum, í smáum skömmtum.

Fjarlæging um 880 tonna af eldsneytisstöngum sem bráðnuðu þykir erfiðasta verkefnið sem aðilar sem að hreinsuninni koma standa frammi fyrir. Sú hreinsun er byrjuð en gengur verulega hægt vegna gífurlegrar geislunar frá efninu.

Áætlað er að árið 2030 geti geislavirkur úrgangur frá kjarnorkuverinu verið um 770 þúsund tonn. Ekki er búið að gera áætlun um hvernig hægt er að ganga frá öllum þeim úrgangi og mun nýrra tækna vera þörf. Þar að auki á eftir að finna stað til að geyma úrganginn og fá samþykki almennings.


Tengdar fréttir

Kallaði svæðið í kringum Fukushima-verið „bæ dauðans“

Efnahags- og viðskiptaráðherra Japans, Yoshio Hachiro, sagði af sér í dag, aðeins tveimur vikum eftir að hann var skipaður ráðherra. Ástæðan er sú að hann kallaði svæðið í kringum Fukushima kjarnorkuverið „bæ dauðans".

Vill að Japanir hætti nýtingu kjarnorku

Nýr umhverfisráðherra Japans vill að kjarnaofnum landsins verði lokað til að koma megi í veg fyrir að stórslys á borð við það sem varð í Fukushima árið 2011 endurtaki sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×