Liver­pool í engum vand­ræðum á suður­ströndinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Chamberlain fagnar fyrsta markinu.
Chamberlain fagnar fyrsta markinu. vísir/getty
Liverpool lenti í engum vandræðum með Bournemouth er liðin mættust í enska boltanum í dag. Leikið var á Vitality-leikvanginum á suðurströnd Englands og lokatölur 3-0.

Jafnræði var með liðunum framan af leiknum og heimamenn í Bournemouth fengu nokkrar lofandi sóknir en það kom þó engum á óvart að fyrsta markið hafi verið Liverpool.

Jordan Henderson sá þá glæsilegt hlaup Alex Oxlade-Chamberlain inn fyrir vörn Bournemouth. Chamberlain kláraði svo færið vel og Evrópumeistararnir komnir yfir.

Þeir tvöfölduðu svo forystuna fyrir hlé er Naby Keita skoraði og þeir hefðu getað bætt þriðja markinu við fyrir hlé en brást bogalistinn. 2-0 í hálfleik.







Það var ljóst frá fyrstu mínútu síðari hálfleiks í hvað stefndi. Leikmenn Bournemouth hugsuðu meira um að verja sitt mark en að kasta öllum fram. Leikurinn eftir því.

Þriðja og síðasta mark leiksins kom á 54. mínútu er Mohamed Salah skoraði. Hann fékk glæsilega sendingu inn fyrir vörn heimamanna og kláraði færið eins og honum einum er lagið. Lokatölur 3-0.







Liverpool er því enn taplaust í deildinni en liðið er með ellefu stiga forskot á Leicester sem leikur á morgun gegn Aston Villa á útivelli.

Bournemouth hefur hins vegar tapað fimm leikjum í röð og er að færast nær botnbaráttunni. Þeir eru í 15. sætinu með 16 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira