Innlent

Dæmdur fyrir brot gegn börnum og konum á Þingeyri

Jakob Bjarnar skrifar
Vafasamt athæfið olli fórnarlömbunum verulegu hugarangri en brotavilji mannsins var einbeittur. Vinstri hluti myndarinnar er sviðsett.
Vafasamt athæfið olli fórnarlömbunum verulegu hugarangri en brotavilji mannsins var einbeittur. Vinstri hluti myndarinnar er sviðsett.
Karlmaður sem tók myndir af átta fórnarlömbum á síma sinn, yfir skilrúm milli búningsklefa karla og kvenna var dæmdur fyrir Héraðsdómi Vestfjarða, sekur um kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum. Dómur féll 7. þessa mánaðar. Brotin voru framin á árunum 2017 og til byrjunar árs 2018 í húsakynnum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar á Þingeyri.

Manninum, sem er á fimmtugsaldri, er gert að sæta fangelsi í fimm mánuði skilorðsbundið. Fórnarlömbum sínum, sem kröfðust samanlagt 10,5 milljóna króna í bætur, skal hann greiða ýmist 300 eða 200 þúsund krónur. Samanlagt tvær milljónir. Þá er honum gert að greiða tæplega 1,5 milljón í sakarkostnað.

Ekki miklar bætur

Fanney Björk Frostadóttir, aðstoðarsaksóknari hjá héraðssaksóknara sem sótti málið, segir, spurð hvort þetta teljist ekki frekar vægar bætur að þetta sé svipað og hefur verið í öðrum hliðstæðum málum. Fanney Björk segir það ekki þýða að bætur mættu ekki vera hærri í slíkum málum, en það sé önnur umræða.

Maðurinn var fastagestur í lauginni og nýtti sér aðstæður til að taka myndir og myndskeið á snjallsíma sinn. Þorbjörg Gunnarsdóttir, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar á Þingeyri, sagði í samtali við Vísi að nýju þili hafi verið komið upp til að girða fyrir vafasama iðju sem þessa.

Sundlaugin á Þingeyri.
Erfitt hafi verið að sjá þetta fyrir en eftir að málið kom upp flutti maðurinn af landi brott. 

Þurftu að leita til sálfræðings vegna málsins

Karlmaðurinn játaði sök í málinu og féllst á bótarétt en taldi bótakröfur of háar. Í einu tilvika var um dóttur hans að ræða. Í dómsorði er vitnað til greinagerða þar sem fram kemur að gjörðir mannsins hafi valdið fórnarlömbum hans verulegu hugarangri.

Jafnframt segir í dómsorði að einn brotaþoli hafi þekkt einn sakborninginn og hann vitað fullvel hversu gömul stúlkan var.

„Hann hafi verið nágranni brotaþola og faðir vinkvenna hennar. Brotaþoli hafi því oft eytt tíma sínum á heimili sakbornings og þekkt til hans og borið traust til hans. Þá er til þess vísað að brotaþola hafi  reynst  erfitt  að rifja  atvikið  upp  og ræða  um  það. Ljóst sé að  brot sakbornings gagnvart brotaþola hafi valdið henni miska,“ segir í niðurstöðu dómsins. 

Viðkomandi hafi sótt sérfræðiaðstoð hjá barnasálfræðingi vegna málsins. 


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×