Viðskipti innlent

Sam­keppnis­eftir­litið sam­þykkir kaup Prent­mets á Odda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nýtt sameinað félag heitir Prentmet Oddi.
Nýtt sameinað félag heitir Prentmet Oddi. Vísir/Gva
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Prentmets á prentsmiðjunni Odda og verður nafn sameinaðs félags Prentmet Oddi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Fyrst var greint frá kaupunum í mars síðastliðnum og var sameining fyrirtækjanna þá sögð svar við þeirri hörðu alþjóðlegu samkeppni sem íslenskur prentiðnaður stæði í þessi dægrin.

Hefði hann til að mynda mátt þola óhagstæða gengis- og launaþróun sem torveldað hefði rekstur íslenskra prentverksmiðja. Það hefði til að mynda leitt til hópuppsagna eins og Oddi þurfti að grípa til í upphafi árs 2018.

Í tilkynningu nú kemur fram að Prentmet Oddi verði með aðsetur að Höfðabakka 7 þar sem Oddi hefur verið til húsa. Hjá sameinuðu félagi starfa um 100 manns.

„Sameinað fyrirtæki mun snúa vörn í sókn til að tryggja framleiðslu á prentverki á Íslandi til lengri tíma. Með kaupunum verður til sterkt fyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir í prentverki og fyrsta flokks þjónustu, byggt á áratuga reynslu og þekkingu starfsfólks.

Prentmet Oddi er leiðandi í vinnslu umbúða og eina fyrirtækið sem getur fullunnið harðspjaldabækur. Á næstu misserum verður unnið að því að styrkja tækjakost fyrirtækisins enn frekar.

Fyrirtækið er Svansvottað og er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra  áhrifa á umhverfi og heilsu. Stefnt er að því að vera leiðandi í umhverfis- og loftslagsmálum og halda áfram að stuðla að sjálfbærni og skógrækt,“ segir í tilkynningu.

Prentsmiðjan Oddi var stofnuð 9. október 1943 af Baldri Eyþórssyni, Finnboga Rúti Valdimarssyni, Björgvini Benediktssyni og Ellert Ág. Magnússyni.

Prentmet var síðan stofnað 4. apríl 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnar Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir sem eiga og reka sameinað fyrirtæki. Guðmundur var á meistarasamning prentsmíði hjá Odda 1985-1988 og var Þorgeir Baldursson forstjóri, meistari hans.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×