Erlent

Bað Boris einnig um hjálp við að grafa undan Rússarannsókninni

Samúel Karl Ólason skrifar
Boris Johnson og Donald Trump.
Boris Johnson og Donald Trump. AP/Evan Vucci
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafði samband við Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og bað hann um hjálp við að grafa undan Rússarannsókninni svokölluðu. Trump hefur lengi staðið í þeirri trú að uppruna rannsóknarinnar megi að miklu leyti rekja til Bretlands og hefur hann meðal annars sakað breskar leyniþjónustur um að njósna um framboð sitt fyrir Barack Obama, forvera sinn.

Sjá einnig: „Dómadagsþvæla“ að Bretar hafi njósnað um Trump

Þetta kemur fram í umfjöllun The Times (áskriftarvefur), sem segir símtalið hafa átt sér stað þann 26. júlí. Það er tveimur dögum eftir að Johnson tók við embætti forsætisráðherra Bretlands og einum degi eftir að Trump ræddi við Volodymr Zelensky, forseta Úkraínu. Það símtal hefur leitt til þess að Demókratar hófu formlegt ákæruferli gegn Trump fyrir embættisbrot.



Nokkrum dögum eftir símtal Trump og Johnson var William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sem hóf í sumar rannsókn á Rússarannsókninni, staddur í London þar sem hann sagði breskum embættismönnum að hann hefði ákveðnar grunnsemdir vegna upplýsinganna sem leiddu til Rússarannsóknarinnar og hlutverk breskra leyniþjónusta í að afla þeirra upplýsinga.

Sjá einnig: Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina



Rannsókn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, á afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016 hófst eftir að ástralskir embættismenn sögðu útsendurum stofnunarinnar frá því að George Papadopoulos, starfsmaður framboðs Trump, sagði einum þeirra þegar þeir voru við drykkju í London, að yfirvöld Rússlands sætu á upplýsingum um Hillary Clinton, þáverandi mótframbjóðanda Trump. Það gerðist áður en opinbert varð að Rússar hefðu gert tölvuárás á tölvukerfi Landsnefndar Demókrataflokksins og stolið tölvupóstum þaðan.

Papadopoulos sagðist hafa heyrt það frá prófessornum Joseph Mifsud, sem er nú horfinn.

Bandamenn Trump og þar er meðtalinn Rudy Giuliani, einkalögmaður Trump, hafa haldið því fram að leyniþjónustur vestrænna ríkja hafi fengið Mifsud til að leiða Papadopoulos í gildru.

Vill ná sér niður á óvinum sínum

Mueller og rannsakendur hans komust að þeirri niðurstöðu að ekkert glæpsamlegt athæfi hafi átt sér stað á milli framboðsins og Rússa en hinsvegar hafi verið ljóst að framboð Trump hafi tekið afskiptum Rússa fagnandi. Mueller tók þó fram tíu tilvik þar sem mögulegt væri að Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar án þess að segja hvort Trump væri sekur eða saklaus.

Trump hefur gefið í skyn að hann sjái rannsókn Barr sem tækifæri til að ná sér niður á óvinum sínum. Í mái sagðist hann vilja að Barr tæki Bretland sérstaklega fyrir í rannsókn sinni og Ástralíu og Úkraínu sömuleiðis.

Barr skipaði John H. Durham sem yfirmann rannsóknarrannsóknarinnar en heimildarmenn NYT segja Barr taka virkan þátt í henni. Það hefur valdið áhyggjum um að Trump hafi skipað Barr að nýta löggæslustofnanir Bandaríkjanna í pólitískum tilgangi.

Trump hefur rætt við ýmsa erlenda leiðtoga og beðið þá um að aðstoða Barr við rannsókn ráðuneytisins. Þar er allavega um að ræða leiðtoga Ástralíu, Úkraínu og Ítalíu. Yfirvöld þeirra ríkja hafa staðfest að símtöl hafi borist frá Trump en embætti forsætisráðherra Bretlands hefur ekki viljað tjá sig um heimildir Times.


Tengdar fréttir

Demókratar stefna Giuliani

Demókratar hafa stefnt Rusy Giuliani, einkalögmanni Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vegna samskipta hans og forsetans við embættismenn í Úkraínu.

Trump leggur til handtöku pólitísks andstæðings

Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði í dag til að handtaka skyldi pólitískan andstæðing sinn fyrir landráð vegna ummæla um samskipti Trumps við Úkraínuforseta. Forseti Úkraínu segir ríki sitt ekki þurfa að hlýða skipunum annarra.

Trump segir Demókrata fremja valdarán

Donald Trump Bandaríkjaforseti sakar demókrata á þingi um að skipuleggja valdarán með tilraunum sínum til að rannsaka embættisfærslur forsetans.

Fátt sem kemur í veg fyrir hefndir Trump gegn uppljóstraranum

Sérfræðingar óttast að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og bandamenn hans komi upp um uppljóstrarann sem kom upp um símtal hans við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem Trump bað hann um að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×