Erlent

Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og William Barr.
Donald Trump og William Barr. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, þrýsti á Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, og bað hann um að hjálpa William Barr, dómsmálaráðherra sínum, við rannsókn hans á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Aðgangur að eftirriti samtals þeirra var takmarkaður verulega svo eingöngu nánustu aðstoðarmenn forsetans höfðu aðgang að því. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum sínum innan ríkisstjórnar Trump.



Málið svipar verulega til þess þegar Trump þrýsti á Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn. Það símtal og uppljóstrarakvörtun vegna þess leiddi til þess að Demókratar ákváðu að hefja formlegt ákæruferli á hendur Trump.

Sjá einnig: Hvíta húsið leyndi fleiri viðkvæmum símtölum Trump við Pútín og Sáda



Samkvæmt NYTimes hringdi Trump sérstaklega í Morrison til þess að ræða við hann um Rússarannsókn Robert Mueller, og það eftir að William Barr, dómsmálaráðherra, bað hann um það.

Washington Post segir Barr hafa verið á ferð og flugi um heiminn að undanförnu. Hann hafi beðið fjölda háttsetta starfsmenn erlendra leyniþjónusta um að hjálpa Dómsmálaráðuneytinu við rannsókn þeirra á Rússarannsókninni.

Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu.AP/John Minchillo
Rannsókn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, á afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016 hófst eftir að ástralskir embættismenn sögðu útsendurum stofnunarinnar frá því að George Papadopoulos, starfsmaður framboðs Trump, sagði einum þeirra að yfirvöld Rússlands sætu á upplýsingum um Hillary Clinton, þáverandi mótframbjóðanda Trump. Það gerðist áður en opinbert varð að Rússar hefðu gert tölvuárás á tölvukerfi Landsnefndar Demókrataflokksins og stolið tölvupóstum þaðan.

Papadopoulos sagðist hafa heyrt það frá prófessornum Joseph Mifsud, sem er nú horfinn.

Bandamenn Trump og þar er meðtalinn Rudy Giuliani, einkalögmaður Trump, hafa haldið því fram að leyniþjónustur vestrænna ríkja hafi fengið Mifsud til að leiða Papadopoulos í gildru.

Hóf rannsókn á rannsókn

Barr, sem hefur verið sakaður um að haga sér eins og lögmaður Trump en ekki dómsmálaráðherra, hóf fyrr á þessu ári rannsókn á Rússarannsókninni, þátt annarra ríkja að henni og því hvort bandarískir löggæsluaðilar eða starfsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna sem komu að henni hafi brotið af sér við upphaf rannsóknarinnar á afskiptum Rússa og hvort að framboð Rússa hafi starfað með þeim.

Sjá einnig: Enn ein rannsóknin á rannsókninni sett á laggirnar



Mueller og rannsakendur hans komust að þeirri niðurstöðu að ekkert glæpsamlegt athæfi hafi átt sér stað á milli framboðsins og Rússa en hinsvegar hafi verið ljóst að framboð Trump hafi tekið afskiptum Rússa fagnandi.

Trump hefur gefið í skyn að hann sjái rannsókn Barr sem tækifæri til að ná sér niður á óvinum sínum. Í mái sagðist hann vilja að Barr tæki Bretland sérstaklega fyrir í rannsókn sinni og Ástralíu og Úkraínu sömuleiðis.

Barr skipaði John H. Durham sem yfirmann rannsóknarrannsóknarinnar en heimildarmenn NYT segja Barr taka virkan þátt í henni. Það hefur valdið áhyggjum um að Trump hafi skipað Barr að nýta löggæslustofnanir Bandaríkjanna í pólitískum tilgangi.



Þátttaka Barr þykir undarleg

Til marks um það segir Washington Post að Barr hafi að undanförnu rætt við embættismenn og starfsmenn erlendra leyniþjónusta um aðstoð við rannsóknina. Hann hafi beðið fjölda háttsetta starfsmenn erlendra leyniþjónusta um að hjálpa Dómsmálaráðuneytinu við rannsókn þeirra á Rússarannsókninni. Meðal annars hefur hann farið til Bretlands og Ítalíu og beðið um aðstoð. Sum sé, að hann hafi beðið erlenda aðila um að rannsaka FBI og leyniþjónustur Bandaríkjanna.

Demókratar munu líklega segja þetta til marks um að Trump sé að nota vald sitt til að herja á andstæðinga sína. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn Dómsmálaráðuneytisins sem blaðamenn ræddu við segjast pirraðir yfir því að ráðherrann sé að taka svo virkan þátt í rannsókn sem byggir á samsæriskenningu og innihaldslausum ásökunum.

Trump hefur þó gert það að ákveðnu herópi sínu og stuðningsmanna sinna að rannsaka rannsakendurna, ef svo má að orði komast. Hann vill grafa undan þeirri niðurstöðu leyniþjónusta Bandaríkjanna að Rússar hafi haft afskipti af forsetakosningunum, með því markmiði að hjálpa Trump að verða forseti.

Það að Barr taki þennan þátt í rannsókninni sýni að yfirlýsingar um fagmennsku og ópólitíska rannsókn hafi verið marklausar, segir David Laufman, fyrrverandi starfsmaður ráðuneytisins sem kom að Rússarannsókninni í upphafi hennar.


Tengdar fréttir

Trump rifjar upp Mueller-æfingarnar

Orð og setningar eins og nornaveiðar, hneyksli, forsetaáreiti, "það hefur aldrei verið komið jafn illa fram við forseta“ og "þetta má ekki gerast aftur“, eru farin að birtast í miklu magni á Twitter-síðu Trump og í yfirlýsingum hans til fjölmiðla.

Demókratar stefna Giuliani

Demókratar hafa stefnt Rusy Giuliani, einkalögmanni Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vegna samskipta hans og forsetans við embættismenn í Úkraínu.

Trump leggur til handtöku pólitísks andstæðings

Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði í dag til að handtaka skyldi pólitískan andstæðing sinn fyrir landráð vegna ummæla um samskipti Trumps við Úkraínuforseta. Forseti Úkraínu segir ríki sitt ekki þurfa að hlýða skipunum annarra.

Ætla að svipta hulunni af fleiri símtölum Trump

Þingmenn Demókrataflokksins eru staðráðnir í því að koma höndum yfir eftirrit og önnur gögn um símtöl Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við aðra þjóðarleiðtoga eins og Vladimir Pútín, forseta Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×