Íslenski boltinn

Óskar Örn aðeins misst af einum deildarleik eftir þrítugsafmælið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óskar Örn var valinn besti leikmaður Pepsi Max-deildar karla á lokahófi Pepsi Max-deildanna á sunnudaginn var.
Óskar Örn var valinn besti leikmaður Pepsi Max-deildar karla á lokahófi Pepsi Max-deildanna á sunnudaginn var. vísir/bára
Óskar Örn Hauksson, fyrirliði Íslandsmeistara KR og besti leikmaður Pepsi Max-deildar karla 2019, hefur ekki misst af leik í efstu deild í rúm fjögur ár.

Óskar hefur leikið 99 leiki í röð í efstu deild, þar af 91 í byrjunarliði. Njarðvíkingurinn hefur leikið alla 22 deildarleiki KR undanfarin fjögur ár. Frá því hann varð þrítugur 22. ágúst 2014 hefur hann aðeins misst af einum deildarleik.

Það heyrir til undantekninga ef Óskar er tekinn af velli. Á undanförnum fjórum tímabilum hefur hann leikið 7798 mínútur af þeim 7920 mínútum sem í boði hafa verið.

Óskar Örn hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með KR.vísir/daníel
Óskar missti síðast af leik í efstu deild þann 12. júlí 2015. Hann sat þá allan tímann á varamannabekknum þegar KR vann 0-3 útisigur á Víkingi R.

Síðasti leikur Óskars í efstu deild þar sem hann var ekki í byrjunarliðinu en kom inn á sem varamaður var 13. september 2015 þegar KR og ÍA gerðu markalaust jafntefli á Akranesi.

Óskar missti af hálfu sumrinu 2011 vegna meiðsla og síðustu leikjunum árið eftir þegar hann var lánaður til Sandnes Ulf í Noregi. Síðan þá hefur hann varla misst af leik með KR.

Undanfarin sjö tímabil hefur Óskar aðeins misst af þremur deildarleikjum og leikið 151 leik af 154 mögulegum í efstu deild.

Óskar Örn hefur ekki misst af heimaleik með KR síðan í júlí 2014.vísir/bára
Óskar er nú sá leikmaður í efstu deild sem hefur leikið flesta leiki í röð (99). Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson kemur næstur með 81 leik. KA-maðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur leikið 66 leiki í röð, eða alla leiki KA síðan liðið komst aftur upp í efstu deild fyrir þremur árum.

Birkir Kristinsson á metið yfir flesta leiki í röð í efstu deild, eða 198. Gunnar Oddsson er sá útileikmaður sem hefur náð flestum leikjum í röð (186).

Óskar hefur alls leikið 309 leiki í efstu deild. Aðeins Birkir hefur leikið fleiri (321). Ef Óskar helst heill og heldur áfram að spila alla leiki ætti hann slá leikjametið í efstu deild um mitt næsta sumar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×