Menning

Teiknaði einstaklinga af Instagram

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Hægt er að berja augum um 140 teikningar Melkorku af hinum ýmsu persónum á Instagram sýningunni.
Hægt er að berja augum um 140 teikningar Melkorku af hinum ýmsu persónum á Instagram sýningunni. Fréttablaðið/Ernir
Listakonan Melkorka Katrín Tómasdóttir opnar sýninguna Korkimonsters klukkan fimm í dag í Flæði við Grettisgötu. Listakonan, sem alla jafna gengur undir viðurnefninu Korkimon, bauðst til að teikna einstaklinga á samfélagsmiðlinum Instagram.

Búddismi og þýska

Melkorka hefur verið sjálfstætt starfandi síðan um áramótin, en hún lærði listsköpun í Sarah Lawrence í New York.

„Ég útskrifaðist þaðan 2017. Ég lærði þar fyrst og fremst myndlist og listfræði en tók á hverri önn þriðja áfanga sem var mjög breytilegur hjá mér. Eina önnina tók ég búddisma í Austur-Asíu, aðra lærði ég um kvikmyndir fjórða áratugarins og svo tók ég þýsku í tvær annir, smá ólíkt,“ segir Melkorka og bætir við að þriðja fagið hafi alltaf náð að smita listsköpunina lítils háttar.

Skiptinám á Íslandi

Þriðja árið fór Melkorka í skiptinám í Listaháskóla Íslands.

„Ég flutti til New York þegar ég var tólf ára. Ég átti nokkrar æskuvinkonur hér en mig langaði að styrkja tengslaböndin enn frekar við landið því ég vissi að mig langaði að flytja hingað aftur eftir námið.“

Hún segir löngun sína til að taka eitt ár í LHÍ hafa verið litaða af því að hún óttaðist að hún væri að missa af því sem væri í gangi hérna heima.

„Eldri systkini mín voru öll í menntaskóla hérna heima og mig langaði að upplifa það líka,“ segir Melkorka og bætir við: „Í LHÍ kynntist ég mörgu fólki. Mér fannst nauðsynlegt að mynda sterkari tengsl til þess að halda rótum.“



 
 
 
View this post on Instagram
some of my korkimonsters see u tomorrow between 17–20!!

A post shared by KORKIMON (@korkimon) on Oct 8, 2019 at 12:23pm PDT

Vildi mynda tengsl á Íslandi

Melkorka tók fyrsta árið í skólanum hérna, þótt hún hefði í raun mátt fara beint á þriðja árið.

„Mig langaði að fara inn á fyrsta árið. Ég vissi að það yrði aðgengilegast. Ekki bara það að fólkið á þriðja ári sé búið að mynda sín tengsl heldur kunna þau mun betur á skólann og vita hvað þau eru að gera.“

Eftir heimflutninga starfaði Melkorka sem listrænn markaðsstjóri fyrir Boxið, netverslun með heim­sendingu fyrir heimilisvörur og mat.

„Þar sá ég um auglýsingar og samfélagsmiðla. Ég var líka alltaf að sinna listinni á sama tíma. En svo hætti ég um þar síðustu áramót og fór í vinnusmiðju á Seyðisfirði í tvo mánuði, sem var alveg frábært. Í kjölfarið langaði mig að láta á það reyna að sinna listinni alfarið. Það getur verið mjög erfitt, maður þarf að setja sjálfum sér ströng mörk til að halda sér við efnið og sækjast sjálfur eftir tækifærunum,“ segir hún.

Hundrað verkefni á fimm dögum

Hún segist oft hafa gleymt sér og að sama skapi hafi hún einangrað sig mikið inn á milli.

„Svo langaði mig aðeins að komast út úr minni rútínu hér og fór til London í einn og hálfan mánuð á námskeið í Central Saint Martins listaháskólanum. Þar fór ég á námskeið þar sem ég átti að gera hundrað verkefni á fimm dögum. Því er ætlað að endurræsa hugmyndaflugið og ferlið að skapandi hugsun.“

Hún segir að hlutirnir hafi þurft að gerast hratt, og stundum voru einungis tíu til fimmtán mínútur fyrir hvert verkefni.

„Maður hafði ekki tíma til að hugsa, maður þurfti bara að byrja. Eitt af verkefnunum var að skapa tíu karaktera fyrir teiknimyndasögu fyrir ákveðið sögusvið. Ég valdi Instagram og fann þar tíu týpur sem mér þótti áhugaverðar og teiknaði þær, ásamt því að gera persónulýsingu.“

Góð viðbrögð glöddu

Melkorka sendi svo myndirnar sem hún teiknaði til fyrirmyndanna og hún segir að það hafi glatt hana mikið hver góð viðbrögð hún fékk.

„Mér fannst gaman að gleðja aðra með myndunum mínum. Í kjölfarið spurðu fleiri hvort ég væri til í að teikna þá. Mig langaði líka að halda því í gangi að vera komin á skrið. Ég setti inn færslu á Instagram, án þess að hugsa of mikið um það, þar sem ég bauðst til að gera myndir af þeim sem sendu mér beiðni,“ segir Melkorka.

Hana langaði að sjá hvort það væri einhver eftirspurn en viðtökurnar komu henni að óvart.

„Ég bjóst við að nokkrir einstaklingar myndu kannski hafa samband. Ég setti stopp á þetta þegar það voru 140 manns búnir að biðja um mynd. Ég er búin með 136 teikningar.“

Enn er fólk að biðja hana um myndir og Melkorku finnst erfitt að segja nei.

„Mér finnst svo mikið hrós að fólk vilji að ég teikni það.“

Sýning Melkorku stendur yfir í dag og á morgun. Opnunin er klukkan fimm í Flæði á Grettisgötu 3 í dag.



 
 
 
View this post on Instagram
Korkimonsters opnar á morgun kl 17!

A post shared by KORKIMON (@korkimon) on Oct 8, 2019 at 10:17am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×