Sánchez lék sinn fyrsta leik fyrir Inter í sigri á Udinese

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sánchez ásamt markaskoraranum Stefano Sensi.
Sánchez ásamt markaskoraranum Stefano Sensi. vísir/getty
Inter er með fullt hús stiga á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Udinese á San Siro í kvöld.

Stefano Sensi skoraði eina mark leiksins með skalla í slá og inn á 44. mínútu eftir fyrirgjöf frá Diego Godín sem lék sinn fyrsta leik með Inter í kvöld.

Alexis Sánchez þreytti einnig frumraun sína í bláa og svarta búningnum í kvöld. Sílemaðurinn kom inn á sem varamaður á 79. mínútu.



Udinese var manni færri síðustu 55 mínútur leiksins eftir að Rodrigo De Paul fékk rauða spjaldinu fyrir að slá Antonio Candreva, leikmann Inter.

Dries Mertens skoraði bæði mörk Napoli sem lagði Sampdoria að velli, 2-0. Napoli er í 4. sæti deildarinnar með sex stig.

Fyrr í dag gerðu Fiorentina og Juventus markalaust jafntefli. Juventus er með sjö stig í 2. sæti deildarinnar en Fiorentina er aðeins með eitt stig í 16. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira