Körfubolti

Margrét fékk krabbamein en náði samt að klára FECC fyrst íslenskra kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Sturlaugsdóttir þegar hún var að þjálfa Breiðablik. Hún varð að hætta með liðið vegna veikinda sinna.
Margrét Sturlaugsdóttir þegar hún var að þjálfa Breiðablik. Hún varð að hætta með liðið vegna veikinda sinna. Vísir/Daníel Þór
Körfuboltaþjálfararnir Margrét Sturlaugsdóttir og Sævaldur Bjarnason útskrifuðust um helgina úr FECC skóla FIBA í Tel Aviv í Ísrael og bættust þar með í hóp útvalda íslenskra körfuboltaþjálfara sem hafa klárað þetta nám.

Margrét og Sævaldur eru númer sjö og átta í röðinni en hinir sem hafa klárað skólann eru Einar Árni Jóhannsson, Ingi Þór Steinþórsson, Hjalti Þór Vilhjálmsson, Ágúst Björgvinsson, Lárus Jónsson og Hallgrímur Brynjólfsson.

Margrét er því fyrsta íslenska konan sem nær að klára þetta próf en það er evrópskt réttindanám í þjálfun körfubolta með áherslu á uppbyggingu afreksmanna/kvenna í körfubolta og kallast FECC eða FIBA Europe coaching certificate.

Þetta var tveggja ára nám, þrjár sumarannir með krefjandi heimaverkefnum og heimildaritgerðum. Farið var á þrjú evrópumót A-deildar fylgst með og lært af þeim bestu.

Þar með er ekki öll sagan sögð því Margrét Sturlaugsdóttir sýndi mikinn styrk og mikla þrautseigju í miðju náminu. Hún fékk krabbamein en hélst samt ótrauð áfram og kláraði prófið sem er eftirtektarverður árangur.

„Hvað mig varðar þá var náttúrulega óheppilegt að greinast með krabbamein stuttu eftir fyrstu lotu en ég ákvað strax að nota það ekki sem neina afsökun þó að það hafi oft verið eilítið flókið en ég þurfti ég að fara til Riga á annarri önn hárlaus og frekar illa útlítandi, en með samþykki um að vera með sérvalið sjúkrahús sem ég gæti leitað ef eitthvað kæmi upp á. Það kom ekki til greina að að nýta  ekki plássið fyrst ég varð fyrir valinu,“ sagði Margrét í viðtali við karfan.is.

Lovísa Falsdóttir, dóttir Margrétar, sagði frá afrekum móður sinnar á Twitter eins og sjá má hér fyrir neðan.



„Það er gaman að vera fyrsta íslenska konan sem sækir þessa gráðu en við vorum 11 kvenmenn af 66 sem hófu námið og þar af útskrifuðust 8 konur sem eru að þjálfa víðs vegar um Evrópu,“ bætti Margrét við.

En hvernig ætlar Margrét að nýta námið.

„Ég er er strax farin að huga að næsta skrefi en reyndar ekki búin að ákveða neitt. Það væri gaman að fara í að fræða aðra þjálfara eða jafnvel meira nám.. vantar fyrsta doktorinn í körfuboltafræðum á Íslandi nei segi svona… Ætli maður fari ekki að stússast eitthvað í körfubolta,“ sagði  Margrét í viðtalinu við karfan.is.

Það má finna viðtal karfan.is við Margréti og Sævald með því að smella hér.

Falur Harðarson, eiginmaður Margrétar, er líka mjög ánægður með sína konu eins og sjá má hér fyrir neðan. Hann má líka vera það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×