Fótbolti

Matthías kom að tveimur mörkum Vålerenga í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Glæsilegur leikur hjá kappanum í kvöld.
Glæsilegur leikur hjá kappanum í kvöld. mynd/valerenga
Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt og lagði upp annað er lið hans Vålerenga rúllaði yfir Bodø/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 6-0.

Matthías lagði upp annað markið og skoraði svo fjórða mark leiksins úr vítaspyrnu á 29. mínútu en staðan var 4-0 í hálfleik. Ótrúlegir yfirburðir Vålerenga.

Matthías spilaði í 68 mínútur fyrir Vålerenga sem er í fjórða sæti deildarinnar en Bodø/Glimt er í því öðru. Óvænt úrslit en Oliver Sigurjónsson var ónotaður varamaður hjá Bodø/Glimt.

Arnór Smárason spilaði í 64 mínútur er Lillestrøm tapaði 5-2 fyrir Kristiansund á útivelli. Lillestrøm eftir leikinn í tólfta sæti deildarinnar en Kristiansund komið upp í það sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×