Úrúgvæ kom tvisvar til baka og náði í jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Luis Suarez
Luis Suarez vísir/getty
Japan tók forystuna tvisvar gegn Úrúgvæ í Suður-Ameríkukeppninni í nótt en þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli.

Úrúgvæ byrjaði leikinn af krafti en Japanar komust inn í leikinn og skoruðu fyrsta markið, Koji Miyoshi gerði það úr skyndisókn á 25. mínútu.

Aðeins sjö mínútum seinna jafnaði Luis Suarez metin úr umdeildri vítaspyrnu sem var dæmd eftir myndbandsdómgæslu.

Snemma í seinni hálfleik kom Miyoshi Japan aftur yfir. Fernando Muslera í marki Úrúgvæ ætlaði að koma út í fyrirgjöf, gerði ekki betur en svo að leggja boltann fyrir Miyoshi sem þurfti bara að stýra boltanum í tómt netið.

En aftur jafnaði Úrúgvæ sjö mínútum seinna, í þetta skiptið var það varnarmaðurinn Jose Gimenez sem skoraði fyrir bláklædda.

Úrúgvæ reyndi hvað þeir gátu að ná í sigurmarkið á loka mínútunum, Suarez átti meðal annars skot í þverslána, en allt kom fyrir ekki og jafntefli niðurstaðan.

Úrúgvæ er á toppi C-riðils með fjögur stig, Japan í þriðja sæti með eitt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira