Fótbolti

Jón Dagur skoraði þegar Vendsyssel féll

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Dagur skoraði fjögur mörk fyrir Vendsyssel á tímabilinu.
Jón Dagur skoraði fjögur mörk fyrir Vendsyssel á tímabilinu. vísir/getty
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í Vendsyssel féllu í dag úr dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 2-2 jafntefli við Lyngby í seinni leik liðanna í umspili. Lyngby vann fyrri leikinn, 2-1, og einvígið, 4-3 samanlagt.

Jón Dagur skoraði fyrra mark Vendsyssel í leiknum í dag úr vítaspyrnu.

Vendsyssel lenti undir á 11. mínútu og í upphafi seinni hálfleiks bætti Lyngby öðru marki við. Staðan var því 4-0 samanlagt.

Leikmenn Vendsyssel sýndu smá lit eftir þetta. Jón Dagur minnkaði muninn í 1-2 á 67. mínútu og fimm mínútum fyrir leikslok jafnaði Tiemoko Konate metin í 2-2 sem urðu lokatölur.

Fulham lánaði Jón Dag til Vendsyssel í fyrra. Hann skoraði fjögur mörk í 26 deildarleikjum með danska liðinu á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×