Ofbeldismaður Nönnu rekinn úr skólanum: „Ég skammaðist mín fyrir að vera vinkona hans“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. júní 2019 22:43 Nanna Elísa við útskrift sína úr Columbia háskóla í New York. Skjáskot
Nanna Elísa Jakobsdóttir hefur búið í New York síðastliðin þrjú ár en fyrir ári síðan lauk hún mastersnámi í alþjóðasamskiptum við Columbia háskólann. Nanna hafði áður lokið BA-gráðu í lögfræði við Háskóla Íslands en hún fluttist til New York árið 2016 til að hefja þar nám. Nám Nönnu gekk vel, þrátt fyrir að vera erfitt og margar áskoranir að glíma við. Nanna lenti í miklu áfalli haustið 2017 þegar hún sneri aftur til New York eftir að hafa varið sumrinu á Íslandi. Hún var úti að skemmta sér með verðandi sambýliskonu sinni en kvöldið tók stakkaskiptum eftir að þær ákváðu að hitta á vin Nönnu úr náminu. „Ég fæ skilaboð frá þessum stráki um að hann vilji hittast og hann býður okkur heim til sín. Við erum þar og fáum okkur drykk, förum í annað partý og förum svo á bar í miðbænum,“ segir Nanna en umræddur strákur hafði verið vinur Nönnu frá fyrsta skóladegi. „Mér fannst hann svolítið óviðeigandi við mig en það eru svo margar hugsanavillur hjá manni [í svona aðstæðum] og ég hugsaði „vá hvað ég er dramatísk að finnast hann óþægilegur, ég á engan rétt á því og hann er líka trúlofaður og við erum vinir.“ Ég ýtti þessum hugsunum frá mér en svo veit ég ekki af mér fyrr en ég er í einhverjum leigubíl og bara ótrúlega hrædd.“Skömmin kom strax „Ég man að ég hugsaði: „Guð minn góður, hann er að nauðga mér.“ Ég reyni mikið að ýta honum frá mér og er alltaf að segja: „Nei, þú ert trúlofaður.“ Mér fannst þetta svo skrítið, mér fannst þegar ég horfði í augun á honum að hann væri bara farinn. Mér fannst hann ekkert sjá mig.“ Nanna missti meðvitund og vaknaði morguninn eftir. Hún segir að þegar hún hafi vaknað „var eins og þetta sé bara nýbúið að gerast“ og hún hafi laumast út eins hljóðlega og hún hafi getað. Dótið hennar hafi verið á víð og dreif um íbúðina, skórnir hvor í sínu herberginu, síminn í sófanum. „Ég var að reyna að finna það mikilvægasta, ég fann til dæmis ekki nærbuxurnar mínar og ekki bækurnar sem ég hafði verið með.“ Þegar Nanna komst heim til sín tók frænka hennar á móti henni, sem hún bjó með á þeim tíma, sem sá strax að eitthvað hafði komið fyrir vegna áverkanna á líkama Nönnu. Þær fóru upp á spítala þar sem Nanna hlaut aðhlynningu og segir hún teymið sem tekið hafi við sér hafa brugðist hárrétt við aðstæðunum. Teymið hvatti hana til að kæra ofbeldið.Marblettirnir á handleggjum Nönnu eftir árásina.VísirMinnisleysi til komið vegna byrlunar Nanna greinir frá því að minni hennar hafi dottið inn og út en hún muni eftir því að hafa verið í leigubílnum og svo allt í einu heima hjá stráknum. Þegar Nanna talaði við hjúkrunarfræðing daginn eftir staðfesti hjúkrunarfræðingurinn það sem Nönnu hafði grunað. Henni hefði verið byrlað og skýrði það minnisleysi hennar um nóttina. Þrátt fyrir hvatningu til að kæra ákvað hún að gera það ekki.Kæra kom ekki til greina „Ég gat ekki hugsað mér það. Ég treysti ekki kerfinu en svo var ég líka hrædd við að hann myndi hefna sín á mér af því að hann er frá New York. Hvítur, ríkur strákur, hann er með miklu sterkara net hér heldur en ég og ég vissi ekki hvernig mér yrði tekið einhvern vegin.“ Gerandinn hafði stundað sama nám og Nanna og því verið reglulegur gestur í sömu byggingu. Þetta haust hafði hann skipt um nám svo að hann var staðsettur í annarri byggingu skólans. Því taldi Nanna að hann ætti ekkert erindi inn í bygginguna hennar og hún taldi hann líka skammast sín fyrir það sem hafði gerst. Sú var ekki raunin. Nanna mætti honum í skólanum en hann lét eins og ekkert væri. Nanna segist hafa fengið taugaáfall og áttað sig á því að hún myndi aldrei finna ró nema hún gæti látið skólayfirvöld vita.Gerandinn sýndi enga iðrun vegna glæpsins Nanna tilkynnti brot mannsins til skólayfirvalda og var honum meinað að nálgast hana og hennar skólabyggingu. Nönnu fannst það einfaldlega ekki nóg og vildi hún að hann yrði rekinn úr skólanum. Við tók átta mánaða langt ferli en gerandinn réði mjög sterkan einkalögmann sem barðist með kjafti og klóm. Nanna segir ofbeldismanninn hafa logið og alls ekki ætlað að viðurkenna neitt. „Eins og ég var svolítið að búast við, að hann myndi sjá að sér,“ sagði Nanna. Honum var að lokum vísað úr skólanum, en það gerðist þegar lokaprófin voru í gangi og þau áttu að fara að útskrifast. Hann fékk ekki að ljúka náminu og var rekinn úr skólanum með skömm. Gerandinn fékk þau skilaboð frá skólanum að þau [í stjórn skólans] hefðu „sjaldan séð jafn mikið ofbeldi í máli innan skólans, það hafi verið greinilegt að brotið hafi verið á konunni. Hann hafi barist með kjafti og klóm síðustu átta mánuði og ekki sýnt neina iðrun.“
Bandaríkin Ísland í dag Kynferðisofbeldi Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Fleiri fréttir Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent