Kawhi Leonard bætti met er Toronto jafnaði rimmuna | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2019 07:30 Kawhi Leonard er búinn að vera alveg magnaður. vísir/getty
Toronto Raptors jafnaði metin í einvígi sínu gegn Philadelphia 76ers í undanúrslitum austurdeildar NBA í nótt þegar að liðið vann sterkan útisigur, 101-96. Kawhi Leonard, sem farið hefur á kostum fyrir Toronto í úrslitakeppninni, fékk loksins smá hjálp frá samherjum sínum sem dugði til sigurs en Leonard skoraði sjálfur 39 stig, tók fjórtán fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Með frammistöðunni setti hann nýtt met hjá Toronto en hann er nú búinn að skora yfir 30 stig í sex leikjum í úrslitakeppninni. Kyle Lowry átti metið en hann skoraði mest 30 stig í fimm leikjum í úrslitakeppninni fyrir Toronto. Jimmy Butler var stigahæstur gestanna með 39 stig auk þess sem að hann tók ellefu fráköst en staðan í einvíginu er nú 2-2 og fer næsti leikur fram í Toronto þar sem að oddaleikurinn verður ef af honum verður.Denver Nuggets jafnaði einnig metin í 2-2 í einvígi sínu gegn Portland í undanúrslitum vestursins með sigri á útivelli, 116-112. Bæði lið eru nú búin að vinna einn leik og tapa einum á heimavelli. Nicola Jokic, Serbinn magnaði í liði Denver, bauð upp á aðra þrennuna í röð með því að skora 21 stig, taka tólf fráköst og gefa ellefu stoðsendingar. Jamal Murray gerði enn betur og skoraði 34 stig en hann var með þrennu í síðasta leik. Murray og Jokic eru fyrstu samherjarnir sem ná þrennu og 30 stiga leik í tveimur leikjum í röð síðan að Magic Johnson og Kareem Abdul Jabbar gerðu slíkt við sama árið 1980.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira