Körfubolti

Meira en fjögur þúsund dagar síðan ÍR vann síðast á heimavelli í undanúrslitunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
ÍR-ingar fagna sigri í úrslitakeppninni 2008.
ÍR-ingar fagna sigri í úrslitakeppninni 2008. Vísir/Valli
ÍR-ingar hafa tapað þremur síðustu heimaleikjum sínum í undanúrslitunum úrslitakeppni karla en á morgun verða liðin ellefu ár frá þessum síðasta sigri Breiðholtsliðsins.

ÍR-ingar hafa ekki unnið heimaleik í undanúrslitum úrslitakeppninnar síðan fyrir hrun íslenska bankakerfisins. Þeir fá hins vegar tækifæri til að bæta úr því í Seljaskólanum í kvöld.

ÍR tekur í kvöld á móti deildarmeisturum Stjörnunnar í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Domino´s deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni á Stöð 2 Sport. Umfjöllun Domino´s Körfuboltakvölds hefst klukkan 18.30 og leikurinn verður síðan gerður upp að honum loknum.

Seljaskólinn hefur samtals hýst sex heimaleiki ÍR-inga í undanúrslitum úrslitakeppninnar en þangað komst ÍR-liðið einnig 2005, 2008 og 2018.

ÍR-ingar töpuðu báðum heimaleikjunum í undanúrslitunum í fyrra sem og síðasta heimaleiknum sínum í undanúrslitunum 2008. Þetta eru því orðnir þrír tapleikir í röð í Seljaskólanum.

ÍR-liðið hefur því ekki unnið heimaleik á þessu stigi úrslitakeppninnar síðan 9. apríl 2008 eða í 4016 daga. Sá sigur var óvæntu 94-77 sigur á Keflavík í leik tvö í undanúrslitunum 2008 en með honum komst ÍR-liðið í 2-0 í einvíginu.

Sveinbjörn Claessen, núverandi aðstoðarþjálfari ÍR, var stighæstur í þessum síðasta heimasigri í undanúrslitum úrslitakeppninnar en hann skoraði 19 stig á rúmum 24 mínútum í þessum fræga leik. Bandaríkjamaðurinn Nate Brown gaf 18 stoðsendingar á félaga sína og þeir Hreggviður Magnússon (15 stig) og Ómar Sævarsson (12 stig, 10 fráköst og 3 varin) voru einnig öflugir.

Þeir sem eru áhugasamir um frekari tölfræði úr þessum síðasta heimasigri ÍR-inga geta skoðað tölfræði leiksins hér eða hér.

ÍR fékk síðan þrjú tækifæri til að vinna þriðja leikinn og komast í úrslitaeinvígi en Keflavíkurliðið vann alla leikina og fór síðan og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir 3-0 sigur á Snæfelli í lokaúrslitunum.

Seljaskólinn hefur því ekki skilað mörgum sigrum þegar svo langt er komið inn í úrslitakeppnina. Í raun hefur ÍR-ingum gengið betur á útivelli í undanúrslitaseríum sínum.

ÍR er nefnilega með betri sigurhlutfall á útivelli (38%, 3 af 8) en á heimavelli (17%, 1 af 6) í sögu sinni í undanúrslitum úrslitakeppni karla.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir heimaleiki ÍR-liðsins.

Heimaleikir ÍR í undanúrslitum úrslitakeppni karla:

2019 - Leikur tvö 8.4.2019 - ???

2018 - Leikur þrjú 11.4.2018 - 15 stiga tap fyrir Tindastól (69-84)

2018 - Leikur eitt 4.4.2018 - 7 stiga tap fyrir Tindastól (92-89)

2008 - Leikur fjögur 13.4.2008 - 18 stiga tap fyrir Keflavík (79-97)

2008 - Leikur tvö 9.4.2008 - 17 stiga sigur á Keflavík (94-77)

2005 - Leikur fjögur 29.3.2005 - 25 stiga tap fyrir Keflavík (72-97)

2005 - Leikur tvö 21.3.2005 - 26 stiga tap fyrir Keflavík (72-98)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×