Ingi Þór: Vantaði að horfa á þá fyrir neðan mitti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. apríl 2019 21:38 KR tapaði sínum fyrsta leik í úrslitakeppninni í kvöld. VÍSIR/EYÞÓR
Ingi Þór Steinþórsson og strákarnir hans í KR þurftu að játa sig sigraða í Þorlákshöfn í dag. „Við fengum alltof mörg stig á okkur eftir tapaða bolta. Svo var eins og þetta væri skrifað í skýin. Þetta féll með þeim. Þeir börðust fyrir þessu. Við vorum ekki nógu sterkir að stíga út,“ sagði Ingi Þór eftir leik. „Mér fannst uppstilltur varnarleikur ganga betur eftir því leið á leikinn en það vantaði meiri baráttu. Þeir voru bara betri en við í dag.“ Ingi Þór segir að Þór sé verðugur andstæðingur og gott betur. „Þór er með hörkulið. Mér finnst umræðan um Þórsara hafa verið hallærisleg; að við séum að fá frímiða í úrslitin. Þetta eru stríðsmenn sem eru góðir í körfubolta,“ sagði Ingi Þór. Honum fannst Þórsarar komast upp með full mikið undir körfunni. „Annan leikinn í röð fannst Julian [Boyd] illa farið með sig undir körfunni. Það sama á við um Kristófer. Það er auðvelt að spila vörn þegar þú færð að spila hart. Ég er ekki að tala um þegar slegið er í hendur heldur hné í læri. Það vantaði að horfa á þá fyrir neðan mitti,“ sagði Ingi Þór.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - KR 102-90 | Þórsarar jöfnuðu Staðan í einvígi Þórs Þ. og KR er jöfn, 1-1, eftir sigur Þórsara í öðrum leik liðanna í Þorlákshöfn, 102-90. 9. apríl 2019 21:30 Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - KR 102-90 | Þórsarar jöfnuðu Staðan í einvígi Þórs Þ. og KR er jöfn, 1-1, eftir sigur Þórsara í öðrum leik liðanna í Þorlákshöfn, 102-90. 9. apríl 2019 21:30