Unglingur lést úr raflosti í lestargöngum í Ósló Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. febrúar 2019 19:55 Haft er eftir lögreglu að ekki sé vitað af hverju unglingarnir voru inni í göngunum. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Unglingur lést í miðborg Óslóar í Noregi síðdegis í dag eftir að hafa fengið raflost inni í lestargöngum í borginni. Tveir unglingar til viðbótar voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús, að því er fram kemur í frétt norska ríkisútvarpsins NRK. Óhappið varð í grennd við Filipstad í Ósló á fimmta tímanum í dag að staðartíma. Hinn látni var fyrst sagður alvarlega slasaður en var svo úrskurðaður látinn í kvöld. Meiðsl hinna tveggja eru einnig sögð af völdum raflosts, sem þeir eru sagðir hafa fengið úr háspennubúnaði inni í göngunum. Ekkert hefur verið gefið upp um aldur þremenningina, utan þess að þeir eru allir á táningsaldri. NRK hefur eftir lögreglumanninum Tore Barstad, sem stýrir rannsókn málsins, að ekki sé enn vitað af hverju unglingarnir voru inni í lestargöngunum í dag. Viðbragðsaðilar hafi fyrst sótt unglingana tvo sem slösuðust og þeir hafi látið vita af þriðja einstaklingnum, sem þá var enn inni í göngunum. Þá er haft eftir fjölmiðlafulltrúa norska lestarkerfisins að unglingarnir hafi verið á svæði sem lokað er almennri umferð. Þar sé að finna háspennubúnað með allt að 15 þúsund volta spennu.
Noregur Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira